Boðuð verkföll lögmæt

Fréttir|23. október 2024

Félagsdómur sýknaði í morgun Kennarasamband Íslands í dómsmáli sem Samband íslenskra sveitarfélaga höfðaði varðandi lögmæti verkfalla sem boðuð hafa verið í tónlistarskóla, leik- og grunnskólum. Niðurstaðan kom formanni KÍ ekki á óvart.

Boðun verkfalla Kennarasambandsins í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla er lögum samkvæmt. Þetta er niðurstaða Félagsdóms sem birti dóm sinn í Landsrétti í morgun.

Málavextir eru þeir að Samband íslenskra sveitarfélaga stefndi Kennarasambandinu fyrir Félagsdóm með þeim rökum að lögmætum tilgangi boðaðra verkfalla væri ekki fullnægt. Sambandið vísaði þar til þess að í samningaviðræðum aðila hefði KÍ ekki lagt fram kröfugerð.

Þessu hafnaði Kennarasambandið og tekur Félagsdómur undir það álit. Í málflutningi Kennarasambandsins kemur fram að KÍ hafi margítrekað, í samningaviðræðum við sambandið, að krafan felist í efndum á 7. grein samkomulags aðila frá 2016. Lögð hafi verið fram ítarleg gögn um hvernig meta megi launamun milli opinbera og almenna markaðarins.

„Stefnandi [Samband íslenskra sveitarfélaga] hafi hvorki fyrir né eftir að hann vísaði kjaradeilunni til ríkissáttasemjara fundið að því að kröfugerð frá stefnda [KÍ] hafi skort eða hana þyrfti að skýra nánar. Hann hafi þvert á móti tekið efnislega afstöðu til kröfugerðarinnar, bæði hafnað henni og hundsað, meðal annars með tilboðum þar sem ekkert hafi verið vikið að álitaefninu,“ segir í dómnum.

Þá segir jafnframt í niðurstöðukafla dómsins að „af gögnum málsins verði ráðið að stefndi [KÍ] hafi á fyrri stigum gert grein fyrir afstöðu sinni til aðferðafræði og viðmiða sem líta skyldi til við greiningu á launamun milli markaða“. Síðar í sömu málsgrein segir: „Að virtum þeim gögnum sem lögð hafa verið fyrir Félagsdóm verður ekki séð að stefnandi [Sambandið] hafi gert grein fyrir afstöðu sinni með sambærilegum hætti og liggja í öllu falli engin skrifleg gögn fyrir um þá aðferðafræði eða viðmið sem hann telur rétt að beita“.

Niðurstaða Félagsdóms er afgerandi, boðuð verkföll Kennarasambandsins eru lögmæt.  

 

Kom ekki á óvart

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fagnaði niðurstöðunni í morgun en sagði hana ekki hafa komið á óvart. „Við töldum okkur hafa farið að lögum við boðun verkfallanna. Málflutningur okkar hefur verið skýr frá upphafi,“ segir Magnús.

Ríkissáttasemjari hefur boðað til samningafundar klukkan eitt í dag. Magnús segir viðræðunefnd KÍ reiðubúna að takast á við verkefnið en mikið beri á milli aðila.

„Verkefnið er stórt en við erum einbeitt og ætlum okkur að komast langt. Svo verður bara að koma í ljós hvað næstu dagar bera í skauti sér,“ segir Magnús.

 

Lesa dóm Félagsdóms

 

Gísli Guðni Hall hæstaréttarlögmaður, sem flutti málið fyrir KÍ, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, að lokinni dómsuppkvaðningu.