Boðað til þriggja jafnréttisstefnumóta

Jafnréttisnefnd KÍ og Menntavísindasvið HÍ ætla að halda þriggja daga viðburð undir yfirskriftinni Jafnréttisstefnumót. Fjölbreytt og áhugaverð málefni verða tekin til umræðu.
Forréttindablinda, jaðarsetning í skólamenningu, jafnrétti í skóla- og frístundastarfi.
Þessi hugtök og fleiri verða efniviður þriggja jafnréttisstefnumóta sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands og jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands efna til í nóvember.
UPPFÆRT 10.11.2021: Þriðja stefnumótið verður á netinu en ekki í formi staðfundar eins og til stóð. Ástæðan er fjölgun COVID-smita í samfélaginu.
Dagskráin er sem hér segir:
Fyrsta stefnumót – Jafnrétti í skóla- og frístundastarfi
Þriðjudagur 9. nóvember – kl. 15:00-16:15
Staður: https://eu01web.zoom.us/j/67366753118
- Hanna Björg Vilhjálmsdóttir setur fundinn en hún er jafnframt fundarstjóri
- Svandís Anna Sigurðardóttir frá Mannréttindaskrifstofu RVK fjallar um Regnbogavottun og hinsegin málefni
- Eva Halldóra Guðmundsdóttir fjallar um það hvernig við tökum samtöl um erfið málefni með ungu fólki
- Sigrún Birna Björnsdóttir kynnir vef jafnréttis hjá KÍ
- Spurningar og umræður
Annað stefnumót – Jaðarsetning í skólamenningu, hvað þarf að ræða? Ungmenni segja frá hugðarefnum sínum
Fimmtudagur 11. nóvember – kl. 15:00-16:15
Staður: https://eu01web.zoom.us/j/67832328010
Fundarstjóri: Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur
- Antirasistarnir - Valgerður Kehinde Reynisdóttir og Kristín Taiwo Reynisdóttir
- Q félag hinsegin stúdenta - Anna María Kjeld
- Femínistafélagið Þóra Melsteð í Kvennó – Pheobe Jarina
- Eiður Welding, framhaldsskólanemi og stjórnarmaður í Öryrkjabandalagi Íslands.
- Spurningar og umræður
Þriðja stefnumót – Forréttindi, forréttindablinda og jafnrétti í skólastarfi
Föstudagur 12. nóvember – kl. 14:00-16:00
Staður: https://eu01web.zoom.us/j/66142663101
Samtal um jafnrétti í skólastarfi
Skapa á samræðuvettvang þar sem ræða á jafnrétti í skóla- og frístundastarfi og leiðir sem nýta má til að skapa öruggari rými fyrir nemendur svo þeir megi njóta réttlætis og blómstra á sínum forsendum. Stefnumótið verður með þjóðfundarformi þar sem þátttakendur ræða ólík málefni í hópum þar sem hópstjórar eru sérfróðir um jafnrétti og jaðarsetningu í skólastarfi.