Boðað til samstöðufundar við þinghúsið í kvöld

Kennarafélag Reykjavíkur hvetur félagsfólk KÍ til að fjölmenna á Austurvöll og sýna samstöðu og baráttuvilja meðan forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína í þingsal.
Boðað er til samstöðufundar kennara á Austurvelli,í kvöld (mánudagskvöld). Kennarafélag Reykjavíkur stendur að viðburðinum og er markmiðið að sýna sterka samstöðu félagsfólks KÍ í yfirstandandi kjaradeilu.
Ráðgert er að safnast saman við Vatnsberann, styttu Ásmundar Sveinssonar, á horni Lækjargötu og Bankastrætis klukkan 19:00.
Gengið verður fylktu liði á Austurvöll og er göngufólk hvatt til að hafa með sér vasasljós, kyndla eða nota farsíma til lýsa svæðið upp.
Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, hvetur félagsfólk til að taka þátt og sýna þannnig sterka samstöðu kennarastéttarinnar. „Við erum að sjálfsögðu ljós í myrkri, segir Kristín.
Auglýsing Kennarafélags Reykjavíkur
