Boðað til samningafundar í fyrramálið
Ríkissáttasemjari hefur boðað til samningafundar í kjaradeilu Félags tónlistarskólakennara og sveitarfélaganna klukkan tíu í fyrramálið.
Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara, tjáði sig um málið við fréttastofu RÚV í kvöld. Þar var haft eftir henni að þegar síðasta fundi, sem var á mánudag, lauk hafi staðan verið sú að ríkissáttasemjari vildi ekki boða til nýs fundar nema hann teldi ástæðu til. Sigrún sagðist vona að nú séu menn að fara að setjast af alvöru við samningaborðið og að verkfallinu fari að ljúka.
Tónlistarskólakennarar hafa verið í verkfalli frá 22. október, eða í nærri fjórar vikur. Sigrún segir tónlistarskólakennara hafa fundist skorta á raunverulegan vilja til að vinna í málefnum. Hún bindur vonir við að nú verði hafist handa við þá vinnu.