Boðað til samningafundar í dag

Fréttir|14. október 2014

Samningafundur í kjaradeilu Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið boðaður klukkan 15 í dag. Fundað var í tvær klukkustundir í gær.

Sigrún Grendal, formaður FT, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að samræðurnar í gær hafi verið betri en áður. Hún segist bera von í brjósti um að skilvirkar og efnislegar umræður muni einkenna fundinn í dag.

Sigrún segir að með því að semja ekki við tónlistarskólakennara megi segi að stjórnvöld séu að gera lítið úr náminu. „Með því að skilja þennan hóp eftir er verið að gefa þau skilaboð að þetta nám sé ekki eins mikils virði og annað nám,“ segir Sigrún í frétt Morgunblaðsins.

Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla gera kröfu um að störf þeirra séu metin til jafns við störf kennara í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Það sem boðið hafi verið hingað til myndi hins vegar þýða að félagar í FT hefðu allt að 30 til 40% lægri laun í maí á næsta ári en kollegar þeirra í KÍ. „Við sem störfum í tónlistarskólunum getum ekki sætt okkur við þennan mun,“ segir Sigrún Grendal, formaður FT.

Tónlistarskólakennarar hafa samþykkt verkfallsboðun 22. október næstkomandi hafi samningar ekki náðst. Viðræðuáætlun var undirrituð fyrir meira en tíu mánuðum en síðan þá hefur lítið þokast í viðræðunum.