Boðað til samningafundar

Fréttir|24. október 2014

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga til fundar klukkan 14 í dag. Ekki hefur verið fundað síðan á þriðjudag en verkfall tónlistarskólakennara hófst á miðvikudag. 

Samningaviðræður hafa staðið yfir í um tíu mánuði en kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara 12. júní síðastliðinn. Félag tónlistarskólakennara er eina aðildarfélag KÍ sem ekki hefur lokið gerð kjarasamnings við Samband íslenskra sveitarfélaga á árinu.