Boðað til kvennaverkfalls 24. október

Konur og kynsegin fólk er hvatt til að leggja niður störf þriðjudaginn 24. október. Er þar átt við launuð sem ólaunuð störf. Verkfallið er boðað í heilan dag að þessu sinni en það hefur ekki verið gert síðan 1985. Fyrsta kvennafríið fór fram 24. október 1975 en þá lögðu 90 prósent kvenna, hér á landi, niður vinnu. Kennarasambandið er meðal launþegasamtaka sem standa að verkfallinu.
Kennarasamband Íslands er meðal þeirra samtaka sem boða til Kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október. Alls boða á fjórða tug samtaka til verkfallsins, þar á meðal ASÍ, BSRB og BHM ásamt fjölda samtaka kvenna og hinsegin fólks. KÍ hvetur konur og kvár til að taka þátt í baráttudeginum með því að leggja niður störf, launuð og ólaunuð, og krefjast jafnréttis í krafti samstöðunnar. Yfirskrift verkfallsins er Kallarðu þetta jafnrétti? og meginþemað kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn konum og kynsegin fólki og kerfisbundið vanmat í störfum kvenna.
Samstaðan er sterkasta vopnið
Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn 24. október árið 1975 á kvennaári Sameinuðu þjóðanna. Þann dag lögðu 90% kvenna um land allt niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Þær vildu mótmæla og vekja athygli á launamisrétti, vanmati á störfum kvenna, skorti á virðingu og valdaleysi kvenna. Hjól atvinnulífsins og reyndar þjóðlífsins alls nánast stöðvuðust þennan dag. Fundurinn vakti athygli um allan heim og sýndi að samstaða er sterkasta vopnið.
Störf kvenna verði metin að verðleikum
Þótt mikið hafi áunnist frá árinu 1975 hefur ekki verið orðið við megin kröfu Kvennafrís: Að störf kvenna séu metin að verðleikum. Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf. Konur sem starfa við ræstingar, umönnun og menntun barna, þjónustu við veikt fólk, fólks með fötlun og aldraðra eru á einna lægstu launum í íslensku samfélagi. Þá birtist kerfisbundið misrétti í því að 40% kvenna hafa orðið fyrir kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi, að trans fólk, þ.m.t. kvár, konur með fötlun og konur af erlendum uppruna verða fyrir meira ofbeldi en aðrir hópar.

Kvennafrídagurinn 1975 var heimssögulegur viðburður en þá lögðu 90 prósent kvenna hér á landi niður vinnu. Um 25 þúsund konur komu saman á Lækjartorgi og er fundurinn einn fjölmennasti útifundur Íslandssögunnar.
Samstöðufundir og hlutverk karla
Baráttukonur og baráttukvár munu safnast saman á Arnarhóli klukkan 14 þriðjudaginn 24. október. Samstöðufundir verða auk þess haldnir víða um land og hægt er að fylgjast með tilhögun þeirra funda á vefnum Kvennaverkfall.
Karlar eru hvattir til að sýna konum og kvárum stuðning í baráttunni fyrir jöfnum kjörum og gera þeim kleift að taka þátt í viðburðum dagsins. Þeir gera það til dæmis með því að taka aukavaktir í vinnunni fyrir þær og þau sem taka þátt í verkfallinu og/eða með því að því sjá um barnaumönnun, veika ættingja og heimilisstörf þennan dag.
Hver standa að baka verkfallinu
Aflið, Alþýðusamband Íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík, BHM – Bandalag háskólamanna, BSRB, Druslugangan, Druslubækur og Doðrantar, Delta Kappa Gamma, félag kvenna í fræðslustörfum, Femínísk fjármál, Femínistafélag HÍ, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag um Fjöruverðlaunin, Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna, IceFemin, Kennarasamband Íslands, Knúz.is, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvennaráðgjöfin, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Rótin, Samtök um kvennaathvarf, SSF – Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, Samtökin '78, Soroptimistasamband Íslands, Stígamót, UN Women Ísland, Ungar athafnakonur, WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi, W.O.M.E.N. in Iceland – Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi
og Q - félag hinsegin stúdenta.
Hvatningarbréf til stjórnenda
Aðstandendur Kvennaverkfalls hafa útbúið hvatningarbréf til stjórnenda á fimm tungumálum. Í bréfinu eru stjórnendur hvattir til að sýna konum og kvárum stuðning í baráttunni með því að hvetja þau til þátttöku í Kvennaverkfallinu án þess að það hafi áhrif á laun þeirra að kjör.
