Boða stærsta kennarafund sögunnar

Alþjóðasamtök kennara efna til fjarfundar á netinu á Alþjóðadegi kennara, 5. október. Fundinum verður streymt í sólarhring og er öllum kennurum heims boðið að taka þátt.
Alþjóðasamtök kennara (Education International) efna stærsta netfundar kennara í sögunni á Alþjóðadegi kennara sem haldinn er hátíðlegur 5. október ár hvert.
Mikið hefur mætt á kennurum það sem af er þessu ári og er markmið Alþjóðasamtaka kennara að leiða kennara frá öllum heiminum saman og veita þeim tækifæri til að fagna öllu því sem hefur áunnist og um leið tryggja að fókusinn sé á menntamálum á tímum heimsfaraldurs.
Árið 2020 er án efa eitt erfiðasta ár skólasögunnar. Yfir 90% nemenda heimsins hafa á einhverjum tíma faraldursins ekki getað sótt skóla, mislengi eftir atvikum en ljóst er að skólahald hefur orðið fyrir gríðarlegum áhrifum um heim allan.
Í frétt á vef Education International segir að kennarar hafi hvarvetna mætt hinum nýju áskorunum af miklum dug; þeir hafi unnið saman, fundið lausnir – allt til þess að tryggja, eins og kostur er, að börn og ungmenni njóti menntunar.
„Kennarastéttin hefur verið framúrskarandi á ótrúlegum erfiðum tímum. Nú er tíminn til að standa saman því við búum yfir krafti til að breyta heiminum. Ef heimurinn á að læra af faraldrinum þá verða kennarar að vera í forystu. Við skulum hefja þá vegferð 5. október,“ segir David Edwards, forseti Alþjóðasamtaka kennara.
Yfirskrift kennaradagsins á alþjóðavísu er: Tökum forystu!
Fjölmennasti fjarfundur sögunnar
Útsending Alþjóðasamtakanna mun standa í sólarhring þann 5. otkóber. Flutt verða erindi, efnt til umræðna – fram munu koma leiðandi aðilar í menntamálum, fulltrúar Sameinuðu þjóðanna, menntamálaráðherrar og þjóðhöfðingjar. Fundurinn hefst í Austurlöndum fjær og endar í Norður-Ameríku.
Það er auðvelt að skrá sig til leiks á fjarfundinum en einnig gefst fólki kostur á að fylgjast einvörðungu með streyminu.
Kennarasambandið hvetur félagsmenn til að halda upp á Alþjóðadag kennara, kennaradaginn, og nýta hann til samræðu um skólamál en líka til vekja athygli á þeim mikilvægu störfum sem kennarar inna af hendi á degi hverjum. #kennaradagurinn2020
David Edwards, forseti Education International, ávarpar kennara