Boð á kínverska tónleika í Hofi og Iðnó

Fréttir|7. maí 2015

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós býður kennara og skólafólk hjartanlega velkomið á tónleika þar sem kínverskir hljóðfæraleikarar flytja tónlist á hið forna strengjahljóðfæri „Qin! og kínverska flautu „Xiao“.

Á tónleikunum verður Cecilia Lindqvist, sænskur rithöfundur og Kínafræðingur, í hlutverki sögumanns sem leiðir hlustandann um hina framandi og hljómfögru veröld tónlistarinnar með fræðslu um tónskáldin og uppruna verkanna. Sjálf lærði hún á „Qin“ þegar hún stundaði nám við Beijing-háskóla árið 1961 og bók hennar um hljóðfærið hlaut sænsku bókmenntaverðlaunin August-priset árið 2006.

Á tónleikunum koma fram Deng Hong sem leikur á Qin, Chen Sha Sha sem leikur á Xiao og Cecilia Lindquist sem gegnir hlutverki sögumanns. 

Efnt verður til tvennra tónleika, á Akureyri og í Reykjavík:

  1. Hof á Akureyri – föstudaginn 8. maí klukkan 20.
  2. Iðnó í Reykjavík – sunnudaginn 10. maí klukkan 20.

Aðgangur er ókeypis.

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós efnir til tónleikahaldsins í samstarfi við Kínvers-íslenska menningarfélagið, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og tónleikana The Sound of Soul.

Nánari upplýsingar er að finna á viðburðasíðu á Facebook og einnig er hægt að horfa á myndband á Youtube.

Í pósti frá Konfúsísuarstofnuninni segir þetta: 

Í rúmlega 2.000 ár var qin algengasta strengjahljóðfærið á meðal menntamanna kínversku yfirstéttarinnar. Margir hljómlistarmannanna, sem helguðu sig hljóðfærinu, voru munkar og heimspekingar og þeim var hljóðfærið uppspretta skilnings á eigin sjálfi. Eins konar hugleiðsla fólst í því að leika á qin um leið og menn öðluðust frelsi frá umheiminum í leit sinni að braut viskunnar. Qin veitti jafnframt þreyttum embættismönnum, útlægum andófsmönnum og snauðum skáldum athvarf frá miskunnarleysi heimsins en beindi þeim um leið í átt til friðsældar við hjartarætur kínverskrar menningar.

Í hverju tónverki eru óbeinar tilvísanir í náttúruna – brönugrasið, blómstrandi aprikósutré, há fjöll og niðandi læki auk trönunnar og villigæsa er þreyta flugið til móts við kvöldroðann. Þetta eru algeng stef í aldalangri sögu Kína, sem enduróma í ótal ljóðum og málverkum.“ (Úr verðlaunabók Ceciliu Lindquist, Qin, sem gefin var út árið 2006)

Xiao er kínversk langflauta sem á sér rætur löngu áður en ritaðar heimildir urðu til. Blástursopið vísar í áttina frá flautuleikaranum sem myndar tóninn á svipaðan hátt og þegar blásið er í flösku. Talið er að flautan eigi rætur að rekja til blásturshljóðfæra sem blásið var í endann á eins og blokkflautur. En tónmyndunin er með svipuðu sniði og á svonefndum krukkuflautum, sem fundist hafa í Kína og eiga rætur að rekja til 6. eða 7. árþúsunds fyrir okkar tímatal.