Blásum byr í seglin
Fréttir|7. október 2026

Kennarasambandið boðar til blaðamannafundar á í dag kl. 14:30 þar sem tillögur að stefnumótun í menntamálum verða kynntar. Fundinum verður streymt á Vísi.
Kennarasambandið boðar til blaðamannafundar í dag 7. október þar sem tillögur að stefnumótun í menntamálum verða kynntar.
Það er í fyrsta sinn í sögu KÍ sem sambandið leggur, með þessum hætti, fram sína sýn og áherslur er varða umbætur í íslensku menntakerfi. Framsögumaður á fundinum verður Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Fundurinn hefst klukkan 14:30 og fer fram í Réttarholtsskóla.
Nánar verður sagt frá efni fundarins að honum loknum.