Blásið til smásagnasamkeppni á nýjan leik
Kennarasambandið í samstarfi við Heimili og skóla hafa ákveðið að efna á nýjan leik til smásagnasamkeppni meðal barna og ungmenna á öllum skólastigum. Tilefni smásagnasamkeppninnar er Alþjóðadagur kennara sem haldinn er með pompi og prakt hér á landi og um heim allan 5. október.
Smásagnasamkeppinni var hleypt af stokkunum í fyrsta sinn í fyrra og tókst afar vel til. Þátttaka fór fram úr vonum og um 140 smásögur bárust frá nemendum í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.
Verðlaun fyrir bestu sögurnar voru veitt við hátíðlega athöfn í Kennarahúsinu að morgni Alþjóðadagsins og verður sami háttur hafður á nú. Keppendum er skipt í fimm flokka en þeir eru: leikskólinn, grunnskólinn 1. – 4. bekkur, grunnskólinn 5. – 7. bekkur, grunnskólinn 8. til 10. bekkur og framhaldsskólinn. Þemað er sem fyrr Kennarinn minn.
Þriggja manna dómnefnd velur bestu smásögurnar og þær verða síðan birtar í heild sinni í Skólavörðunni sem kemur út um miðjan október. Verðlaunahafarnir fá auk þess vandaða lestölvu.
Skilafrestur á smásögum er 20. september og ber að skila handritum á netfangið smasaga@ki.is. Gæta verður þess að láta fylgja upplýsingar um höfund, heimilisfang og símanúmer svo hægt sé að hafa samband ef þurfa þykir.
Það er von Kennarasambandsins og Heimilis og skóla að þátttaka í smásagnasamkeppninni verði góð og verkefnið veiti nemendum ánægju.
Frétt um úrslit keppninnar í fyrra.
*Uppfært 15. sept; skilafrestur framlengdur til 20. september.