Bjóst við að það yrði erfitt að hætta

Alma Guðmundsdóttir er annar tveggja snyrtifræðinga sem unnu að stofnun snyrtifræðináms við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Hún kenndi við skólann í 32 ár og hafa ýmsar breytingar orðið á náminu í gegnum tíðina. Alma hætti að vinna fyrir nokkrum árum og nýtti tímann til að ferðast mikið erlendis þar til COVID-19 faraldurinn skall á.
Ég ákvað að læra snyrtifræði þegar ég var unglingur. Það var svolítið skrýtið vegna þess að ég var ekkert mikið fyrir að mála mig eða snyrta yfir höfuð. Þetta var bara eitthvað sem mig langaði til að gera. Þá var námið á Íslandi á snyrtistofu í tvö ár og var svolítið erfitt að komast að. Foreldrar mínir þekktu Maríu Dalberg sem var með stærstu snyrtistofuna í Reykjavík og ég komst að hjá henni og lærði þar í tvö ár. Hún var strangur kennari þannig að ég lærði vel hjá henni. Þetta var herminám eins og var í þá daga og svo lærðum við líf- og lífeðlisfræðina hjá lækni úti í bæ.“
Alma vann eftir námið í tvö ár á snyrtistofu Maju og síðan sem gjaldkeri í heildverslun í áratug. Hún rak eigin snyrtistofu í stuttan tíma áður en hún gerðist kennari.
Alma segir að mannlegu samskiptin í snyrtifræðinni hafi heillað sig mest. „Þetta er mikið þjónustustarf. Maður er svolítið að hjálpa náunganum og gera vel við hann. Þetta er mjög þakklátt starf og þessi nánd við einstaklingana heillaði mig strax.“
Alma vann síðan ásamt Bergljótu Stefánsdóttur að uppbyggingu snyrtifræðináms við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
„Ég var í stjórn Félags snyrtifræðinga og það hafði verið mikil barátta fyrir að reyna að gera snyrtifræðina að löggildri iðngrein sem tókst í febrúar 1985. Félag snyrtifræðinga fór í kjölfarið að vinna að því að boðið yrði upp á snyrtifræðinám í skóla en fram að þeim tíma hafði fagið verið kennt á snyrtistofum. Við vorum tvær sem vorum fengnar í að koma þessu af stað og hófst kennsla í snyrtifræði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti haustið 1985.“
Meira nám en fólk bjóst við
Alma segir að sér hafi fundist það góður kostur að snyrtifræði yrði kennd í fjölbrautakerfinu. „Margir hafa spurt af hverju þetta fór ekki í iðnskólann en við töldum að snyrtifræði tengdist meira heilbrigðisgreinum. FB bauð upp á sjúkraliðanám þannig að það var mjög góður kostur að koma snyrtifræðinni þangað en nemendur í snyrtifræði sækja meðal annars tíma hjá hjúkrunarfræðingum með sjúkraliðabrautinni og efnafræðingum með náttúrufræðibraut.“
Sjö nemendur hófu nám í snyrtifræði við FB haustið 1985 og fór þeim fjölgandi með hverju árinu sem leið. Þegar Alma hætti að vinna í lok haustannar 2017 höfðu 14 nemendur hafið nám í upphafi þeirrar annar. Nemendur þurfa að vera orðnir 18 ára þegar þeir hefja nám og segir Alma að sumir nemendur hafi verið um fimmtugt við upphaf námsins. „Algengasti aldurinn var þó milli 18 ára og þrítugs.“ Alma segir að einu sinni hafi karl ætlað að hefja nám í snyrtifræði, en hætt við. „Það er mikið um karlmenn í þessu fagi erlendis.“ Snyrtifræðingar nýta menntun sína víða svo sem á snyrtistofum, á heilsulindum hótela, í heildsölum sem flytja inn snyrtivörur og í snyrtivörudeildum verslana.
Alma og Bergljót fóru í kennsluréttindanám við Kennaraskólann árið 1988. „Þá var gefinn kostur fyrir meistara í iðngreinum að fara í svokallað UF nám og við gerðum það báðar með kennslunni þannig að það var ansi mikið að gera á því tímabili. Síðan sóttum við reglulega ráðstefnur og námskeið erlendis á vegum alþjóðasamtaka snyrtifræðinga, Cidesco, og pössuðum upp á að bjóða upp á nýjungar í náminu þannig að kennslugögn breyttust í samræmi við það.“
Alma og Bergljót voru einu kennararnir á snyrtibrautinni fyrstu árin, en núna eru sex kennarar í verknáminu. Kennslan var fyrstu árin í einni kennslustofu en nú er um að ræða aflokað svæði með fjórum kennslustofum auk séraðstöðu fyrir nemendur þar sem þeir geta skipt um föt auk þess sem þar er séraðstaða fyrir kennara.
Í byrjun var um að ræða tvær annir þar sem var kennt bóklegt og verklegt nám og síðan tók við starfsþjálfun í 10 mánuði. Námið hefur lengst og í dag skiptist námið í bóklegt og verklegt nám og starfsþjálfun í níu mánuði og tekur námið að jafnaði fjögur ár. Eftir að hafa lokið öllum áföngum, bæði í skóla og starfsþjálfun, geta nemendur sótt um að taka sveinspróf sem veitir starfsheitið snyrtifræðingur. Síðan er hægt að bæta við meistaranámi sem eru þrjár annir.
„Þessar meðferðir í snyrtifræðinni eru alltaf að verða flóknari. Það er verið að vinna með svo öflug efni og tæki og sérstaklega í meðferðum á líkamann þannig að það þurfti að lengja námið sem var gert fyrir nokkrum árum. Starf snyrtifræðinga er mikið starf. Fólk sem kom í heimsókn í skólann og sá hvað við vorum að gera varð oft mjög hissa vegna þess að það hélt að þetta væri miklu minna nám og nemendur ráku sig oft á að þetta var miklu meira nám en þeir bjuggust við.“
Bjuggu til kennslugögn
Alma segir að engin kennslugögn hafi verið til þegar byrjað var að kenna snyrtifræði við FB og lítið sem ekkert sem þær Bergljót höfðu í raun og veru í höndunum. „Við fórum mikið eftir enskri bók og höfðum í huga kröfur alþjóðasamtaka snyrtifræðinga, Cidesco.
Snyrtifræði fellur undir iðnfræðslulögin og þar af leiðandi var lögð áhersla á fleira heldur en alþjóðasamtökin gerðu kröfur um.“
Alma og Bergljót bjuggu til kennslugögn og var þá oft um helgar- og næturvinnu að ræða. „Það var mikil vinna sem lá þar á bak við. Það var voða gaman þegar ég var að grúska í nýjungunum og koma með nýtt inn í kennslugögnin. Mér leiddist aldrei að betrumbæta og koma með meira, og alltaf það nýjasta, inn í gögnin og það var gaman að nemendur voru alltaf opnir fyrir til dæmis nýjum litum eða nýjum aðferðum. Þetta er þannig fag.
Kennslugögnin þróuðust úr því að við vorum alltaf að þýða úr ensku yfir á íslensku til að gera nemendum auðveldara fyrir. Ætli það séu ekki 15-20 ár síðan ég bjó til kennsluhefti fyrir áfangana sem ég kenndi. Þessi kennsluhefti eru enn notuð en þau eru uppfærð reglulega. Árið 2012 sömdu tveir kennarar á snyrtifræðibrautinni kennslubók sem er mikill munur fyrir nemendur.“
Það hefur líka verið þróun í tækninni. „Þetta var fyrst allt á glærum og endalaust verið að klippa myndir og púsla saman og reyna að gera þetta svolítið myndrænt því þetta er verknám og gott að hafa kennslugögnin myndræn. Þetta varð allt miklu auðveldara eftir að byrjað var að nota tölvur.“ Þess má geta að Alma hefur áhuga á að kennsluheftin sem hún útbjó verði gerð rafræn.
Mannlegi þátturinn
Alma minntist á mannlegu samskiptin og hún segir að mannlegi þátturinn hafi verið sterkur í starfi sínu hjá FB. „Það þarf að vera mjög gefandi manneskja til að geta unnið sem snyrtifræðingur. Það sem mér fannst skemmtilegast í starfinu var að reyna að þroska þessa hæfileika hjá nemendunum og kenna þeim ef þeir áttu erfitt með eðlileg samskipti - þjónustusamskipti - og hjálpa þeim varðandi það. Það var svo mismunandi hvaða hæfileika nemendur höfðu hvað þetta varðar og það var gaman að þróa séreinkenni þeirra,en það þarf visst fágaða framkomu. Ég held að áherslurnar hafi aðallega falist í að hjálpa nemendunum í að þroska hæfileika sína.“
Þetta er mjög þakklátt starf og þessi nánd við einstaklingana heillaði mig strax.
Alma segir að sér hafi aldrei leiðst í vinnunni. „Ég hafði alltaf gaman af að fara í vinnuna.“ Hún segir að hún sakni nemendanna mest. „Í fjölbrautakerfinu eru nemendur mikið að fara á milli en á snyrtibrautinni er þetta svolítið eins og bekkjakerfi. Maður var með sömu nemendurna í sama hópnum í nokkrar annir. Það er eftirminnilegast að hafa tekið á móti nýjum hópi og kynnast nemendum síðan smátt og smátt mjög vel. Það var líka gaman að vera með samkennurum og ég hitti þær reglulega sem kenndu á snyrtifræðibrautinni og svo fer ég upp í skóla og hitti fólkið.“
Rafmagnshjól í húsbílnum
Alma segir að hún hafi hætt störfum í FB þar sem maðurinn hennar hafi verið hættur að vinna og þau langaði til að ferðast meira á veturna. „Ég bjóst við að það yrði svolítið erfitt að hætta að vinna og ég myndi sakna þess að fara ekki í vinnuna en það kom mér svolítið á óvart að svo var ekki. Það var svo skrýtið. Þetta er nýr kafli í lífinu. Við vorum bæði búin að vinna mikið; ég var með heimili, vann í FB og svo rákum við fyrirtækið Pústþjónustu BJB og ég vann stundum þar eftir að ég minnkaði við mig kennslu á sínum tíma.
Við seldum fyrirtækið, sem var orðið ansi stórt, árið 2007. Ég kalla þetta uppskeruhátíðina mína. Við hjónin erum að uppskera eftir mikla vinnu.“
Hjónin fóru að ferðast eftir að Alma hætti að vinna og hafa farið í nokkrar utanlandsferðir. „Ég hef ekki haft tíma til að láta mér leiðast. Við vorum búin að ferðast mikið áður en ég hætti að vinna. Við höfðum til dæmis farið í tvær Evrópuferðir í húsbíl og okkur langaði til að gera meira af því og vera lengur; það var kannski hvatning til að hætta að vinna. Við höfum síðan farið í tvær þriggja og fjögurra mánaða Evrópuferðir í bílnum.“ Hjónin hafa alltaf farið með húsbílinn sinn með Norrænu og ekið frá Danmörku suður á bóginn hvað þessar ferðir varðar. „Í einni ferðinni ókum við til dæmis niður allan Spán og svo upp Portúgal. Við vorum í síðustu Evrópuferð í fjóra mánuði en þá ókum við alla leið til Grikklands. Við tókum síðan ferju yfir til Ítalíu og fórum til Sikileyjar og fórum síðan aftur norður eftir. Þetta er voðalega skemmtilegur ferðamáti og maður sér löndin með öðrum augum en ella. Við erum með rafmagnshjól í bílnum og hjólum mikið erlendis. Við höfum til dæmis hjólað upp klettinn á Gíbraltar og eftir Champs-Élysées-breiðgötunni í París.“
Frá því Alma hætti að vinna hafa hjónin einnig farið til Flórída þar sem þau hafa leigt hús á svæði fyrir 50 ára og eldri. Þar hafa þau stundað golf þar sem golfvellir eru í nágrenninu. „Það er voða notalegt. Maður er þá eigin herra og getur bara notið þess að vera í góða veðrinu.“ Hún segir að í einni ferðinni hafi þau svo að áeggjan vinahópsins farið á siglingu á skemmtiferðaskipi sem sigldi til Mexíkó þannig að vinahópurinn naut félagsskaparins undir suðrænni sól.
Í sumar ferðuðust hjónin um Ísland á húsbílnum. Svo eiga þau sumarbústað við Laugarvatn þar sem er mikill skógur og alltaf nóg að gera.
Hjónin hafa líka nóg að gera þegar þau eru ekki að ferðast. „Við förum í sund daglega og ég er alveg búin að venjast því og tel það lúxus að fara í sund, borða morgunmatinn í rólegheitunum og lesa blöðin.“
Alma segir að hún sé búin að skipta út bókunum í bókahillunum á heimilinu. „Fræðibækurnar voru teknar út og núna eru þar aðallega ferða- og prjónabækur en mér finnst agalega gaman að prjóna. Ég hef prjónað í bílnum í Evrópuferðunum. Maður er búinn að skipta um gír. Þetta er nýr kafli.“