Björg gefur kost á sér
Fréttir|13. janúar 2014
Björg Bjarnadóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem varaformaður Kennarasambands Íslands.
Framboðsnefnd hefur auglýst eftir tilnefningum til varaformanns og skal þeim skilað fyrir 15. janúar.
Nöfnum frambjóðenda fylgi: kennitala, heimilsfang, starfsheiti, símanúmer, vinnustaður, netfang og mynd.
Tilnefningar skal senda Stefáni Andréssyni formanni framboðsnefndar í tölvupósti á eftirfarandi netföng: stand@fb.is eða stand@mi.is. Berist fleiri framboð verður kosið í embættið í almennri kosningu meðal félagsmanna KÍ. Henni skal lokið eigi síðar en 19. febrúar nk.