Bjóðum félagsmönnum í gönguferð á Húsfell

Fræðslunefnd KÍ efnir til gönguferðar félagsmanna á Húsfell, hæsta fjall Garðabæjar, miðvikudaginn 28. maí. Leiðsögumaður verður Róbert Marshall fjallagarpur með meiru.
Gönguferð á Húsfell, sem er 285 metra hátt fjall, í grennd við höfuðborgina er á dagskrá fræðslunefndar Kennarasambandsins í næstu viku, nánar tiltekið miðvikudaginn 28. maí.
Ferðin er hluti af fræðsludagskránni, FRÆ, sem margir félagsmenn þekkja frá því í vetur.
Róbert Marshall einn af forsprökkum Útihreyfingarinnar og þrautreyndur fjallamaður flutti FRÆ fyrirlestur um Útivist, birtu og hreyfingu 4. apríl síðastliðinn.
Staður og stund
Göngufólk kemur saman, klukkan 17, á bílastæðinu við Helgafell (sjá kort). Gott er að gera ráð fyrir ferðatíma, kannski 20 til 40 mínútum, fyrir félagsmenn sem koma af höfuðborgarsvæðinu. Gera má ráð fyrir að gangan vari í um 2-3 klukkustundir.
Gönguleiðin er stikuð og þægileg en fara þarf um hraun og varast gjár á leiðinni. Húsfell er 285m hátt móbergsfjall og er uppgangan aðeins brött en snörp. Á móbergi er gott að vera á grófum strigaskóm eða léttum gönguskóm.
Nánari upplýsingar um búnað og veður koma í hádeginu þriðjudaginn 27. maí – fylgist með!
Bæjarfjöllin víða um land
KÍ hvetur trúnaðarmenn og allt áhugafólk um útivist í skólum landsins til að skipuleggja göngu með sínu samstarfsfólki á sitt bæjarfjall eða í næsta nágrenni.
Mikilvægi hreyfingar útivið þarf ekki að tíunda og er þetta gott tækifæri til að koma sér af stað út í sumarið.
Félagsfólk sem skipuleggur göngur í heimabyggð er hvatt til að senda upplýsingar og myndir á netfangið utgafa@ki.is.