Bjóða sig fram til trúnaðarstarfa fyrir FG

Fréttir|30. janúar 2018

Á fimmta tug félagsmanna gefa kost á sér til hinna ýmsu trúnaðarstarfa.

Framboðslistar til stjórnar, samninganefndar, skólamálanefndar og kjörnefndar Félags grunnskólakennara liggja fyrir. Á fimmta tug félagsmanna gefa kost á sér til hinna ýmsu trúnaðarstarfa.

Rafræn atkvæðagreiðsla fer fram dagana 7. til 12. febrúar næstkomandi. Ný stjórn og nefndir taka svo formlega við á aðalfundi Félags grunnskólakennara sem fram fer í Borgarnesi 17. og 18. maí 2018. Þá tekur Þorgerður Laufey Diðriksdóttir við embætti formanns en hún var kjörin formaður félagsins fyrr í þessum mánuði. 
 

Frambjóðendur til stjórnar FG eru:

  • Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Glerárskóla, Akureyri
  • Árný Elsa Lemacks, Kelduskóla, Reykjavík
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Öldutúnsskóla, Hafnarfirði
  • Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, Árbæjarskóla, Reykjavík
  • Hjördís Albertsdóttir, Reykjahlíðarskóla, Mývatnssveit
  • Hreiðar Oddsson, Álfhólsskóla, Kópavogi
  • Jens Guðjón Einarsson, Stóru-Vogaskóla, Vogum
  • Kjartan Ólafsson, Vatnsendaskóla, Kópavogi
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, Austurbæjarskóla, Reykjavík
  • Siggerður Ólöf Sigurðardóttir, Hvolsskóla
  • Sigurður Freyr Sigurðarson, Síðuskóla, Akureyri
  • Silja Kristjánsdóttir, Sjálandsskóla, Garðabæ
  • Svava Þ. Hjaltalín, Giljaskóla, Akureyri
  • Þórdís Sævarsdóttir, Dalskóla, Reykjavík

    Kosnir verða sex aðalmenn og fimm varamenn.


Eftirtalin bjóða sig fram í samninganefnd FG:

  • Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Glerárskóla, Akureyri
  • Árni Már Árnason, Flataskóla, Garðabæ
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Öldutúnsskóla, Hafnarfirði
  • Bergljót Ingvadóttir, Varmárskóla, Mosfellsbæ
  • Elín Soffía Harðardóttir, Víðistaðaskóla, Hafnarfirði
  • Eva Káradóttir, Grunnskóla Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum
  • Eyjólfur Kolbeins, Ölduselsskóla, Reykjavík
  • Gauti Eiríksson, Álftanesskóla, Garðabæ
  • Hreiðar Oddsson, Álfhólsskóla, Kópavogi
  • Imke Schirmacher, Lágafellsskóla, Mosfellsbæ
  • Jón Ingi Gíslason, Vættaskóla, Reykjavík
  • Kjartan Ólafsson, Vatnsendaskóla, Kópavogi
  • María Birgisdóttir, Laugarnesskóla, Reykjavík
  • Sigfús Aðalsteinsson, Giljaskóla, Akureyri
  • Siggerður Ólöf Sigurðardóttir, Hvolsskóla
  • Silja Kristjánsdóttir, Sjálandsskóla, Garðabæ
  • Torfhildur Sigurðardóttir, Álfhólsskóla, Kópavogi
  • Þórdís Sævarsdóttir, Dalskóla, Reykjavík
  • Örlygur Þór Helgason, Lágafellsskóla, Mosfellsbæ

    Kosnir verða fimm aðalmenn og fimm varamenn.


Eftirtalin bjóða sig fram í skólamálanefnd FG:

  •  Alda Áskelsdóttir, Hvaleyrarskóla, Hafnarfirði
  •  Árný Jóna Stefánsdóttir, Kópavogsskóla, Kópavogi
  • Guðrún I. Stefánsdóttir, Lágafellsskóla, Mosfellsbæ
  • Kristín Björnsdóttir, Sunnulækjarskóla, Selfossi
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, Austurbæjarskóla, Reykjavík
  • Margrét Össurardóttir, Hvaleyrarskóla, Hafnarfirði
  • Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, Brekkuskóla, Akureyri
  • Rannveig Þorvaldsdóttir, Árbæjarskóla, Reykjavík
  • Sigríður Guðrún Guðjónsdóttir, Álfhólsskóla, Kópavogi
  • Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir, Sjálandsskóla, Garðabæ
  • Sigþrúður Harðardóttir, Grunnskólanum í Þorlákshöfn, Þorlákshöfn
  • Svava Þ. Hjaltalín, Giljaskóla, Akureyri
  • Þorbjörg Ólafsdóttir, Síðuskóla, Akureyri
  • Þórdís Sævarsdóttir, Dalskóla, Reykjavík

    Skólamálanefnd er skipuð sex aðalmönnum og sex til vara.


Frambjóðendur í kjörnefnd FG:

  • Arndís Hilmarsdóttir, Foldaskóla, Reykjavík
  • Árný Jóna Stefánsdóttir, Kópavogsskóla
  • Elín Guðfinna Thorarensen, Ölduselsskóla, Reykjavík
  • Hrafnhildur Svendsen, Lágafellsskóla, Mosfellsbæ
  • Inga Lóa Hannesdóttir, Grunnskólanum Hveragerði
  • Lilja Margrét Möller, Vesturbæjarskóla
  • Páll Erlingsson, Grunnskóla Grindavíkur

    Í kjörnefnd sitja þrír aðalmenn og þrír varamenn.

 

Atkvæðamagn ræður því hverjir taka sæti sem aðalmenn og hverjir sem varamenn. Lög FG og hlutverk stjórnar og nefnda er hægt að kynna sér hér.