Bjóða dönskukennurum styrk til námsdvalar
Fréttir|5. desember 2022

Dansk-íslenski ferðasjóðurinn auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum dönskukennurum um styrki fyrir námsdvöl í Danmörku fyrir 2023. Umsóknarfrestur er til 12. desember.
Sjóðurinn styrkir íslenska dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum til dvalar í Danmörku sem gerir þeim fært að kynna sér danskt mál, samfélag og menningu.
Umsóknir berist með tölvupósti til Gottskálks Jenssonar, formanns sjóðsins, á netfangið gottskalk@hum.ku.dk og/eða til Auðar Hallgrímsdóttur stjórnarmanns á netfangið auhau@hi.is fyrir 12. desember 2022.
Með umsóknum skal fylgja staðfesting á starfi umsækjanda við dönskukennslu ásamt upplýsingum um fyrirhugaða námsdvöl í Danmörku.