Bjarmahlíð fær jólakortastyrk KÍ

Fréttir|22. desember 2022

Kennarasamband Íslands styrkir Bjarmahlíð um 400 þúsund krónur.

Jólakortastyrkur Kennarasambandsins rennur að þessu sinni til Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri. Kennarasambandið hefur ekki sent jólakort um langt árabil en þess í stað hefur sambandið látið fé af hendi rakna til stofnana, samtaka og félagasamtaka sem vinna að velferð barna og ungmenna.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, afhenti Agnesi Björk Blöndal, aðstoðarsaksóknara hjá Lögreglunni á Norðurlandi Eystra og formanni framkvæmdaráðs Bjarmahlíðar, styrkinn norður á Akureyri í dag, að Guðjóni Hreini Haukssyni, formanni Félags framhaldsskólakennara og Sigurði Sigurjónssyni, formanni Félags stjórnenda leikskóla, viðstöddum.

Hvað er Bjarmahlíð?

Á vefsíðu miðstöðvarinnar segir: „Bjarmahlíð tók formlega til starfa 10. maí 2019. Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á ráðgjöf og upplýsingar fyrir einstaklinga frá 16 ára aldri sem hafa verið beittir ofbeldi. Hjá Bjarmahlíð er unnið með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum. Öll þjónusta og ráðgjöf er undir sama þaki með það að markmiði að auðvelda þolendum að leita sér aðstoðar. Bjarmahlíð leggur áherslu á þverfaglega samvinnu mismunandi stofnanna og samtaka sem koma að vinnu á staðnum. Brotaþola er mætt í hlýlegu og öruggu umhverfi, á þeirra forsendum og einstaklingum að kostnaðarlausu. Markmiðið Bjarmahlíðar er að efla fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, ásamt því gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið.“

Bjarmahlíð er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, félagsmála- og dómsmálaráðuneytisins, Lögreglunnar á Norðurlandi Eystra, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Sjúkrahússins á Akureyri, Aflsins, Samtaka um kvennaathvarf, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.

 

Bjarmahlíð er staðsett í Aðalstræti 14 á Akureyri

Vefsíða Bjarmahlíðar