BHM og BSRB lýsa yfir stuðningi við kennara

Kennarasambandinu hafa borist góðar stuðningskveðjur frá BSRB og BHM. Áður hafa Sameyki og Fagfélögin lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu KÍ.
„BHM lýsir yfir stuðningi við kennara í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Áherslumál kennarasambandsins snúa að virðismati starfsins, að kennarar fái sambærileg laun og aðrir háskólamenntaðir á vinnumarkaði.“
Þetta kemur fram í yfirlýsingu BHM sem var birt í dag. BSRB hefur einnig lýst yfir stuðningi við baráttu Kennarasambands Íslands vegna kjaradeilu við Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið.
Áður hafa Sameyki og Fagfélögin sent frá sér stuðningsyfirlýsingar til handa félagsfólki KÍ.
Yfirlýsing BHM hljóðar svo
12. nóvember
BHM lýsir yfir stuðningi við kennara í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Áherslumál kennarasambandsins snúa að virðismati starfsins, að kennarar fái sambærileg laun og aðrir háskólamenntaðir á vinnumarkaði.
Bandalagið hefur lagt sín lóð á vogarskálina í baráttunni fyrir launajafnrétti m.a. með setu í aðgerðarhópi um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. Kennarastéttin hefur sérstöðu hvað kynjaskiptingu varðar, hún er að stærstum hluta kvennastétt og í skýrslu aðgerðarhópsins kom fram að laun séu almennt lægri í starfsgreinum þar sem konur eru í meirihluta. Kynjaskiptur vinnumarkaður og vanmat á kvennastörfum er meginástæðan fyrir launamun kynjanna. Þrátt fyrir lögbundna reglu um launajafnrétti er enn glímt við umtalsverðan launamun.
Kennarastéttin er ein af grunnstoðum samfélagsins og forsenda menntunar þjóðar. BHM stendur með traustri menntun, framtíðinni og kennurum!
Yfirlýsing BSRB hljóðar svo
11. nóvember
BSRB lýsir yfir stuðningi við baráttu Kennarasambands Íslands vegna kjaradeilu þeirra við Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið. Kennarastéttin er að stórum hluta kvennastétt sem býr við kerfisbundið vanmat á störfum þeirra sem birtist í lægri launum þeirra samanborið við önnur störf sem telja má jafnverðmæt.
Vanmat á kvennastéttum er talin ein meginástæða launamunar kynjanna og birtist í kynjaslagsíðu á þeim atriðum sem hafa áhrif á launasetningu starfa, svo sem ábyrgð, álagi og starfsumhverfi. Við höfum byggt velferðarkerfið okkar á þessum ómissandi störfum en opinberir atvinnurekendur hafa veitt sjálfum sér afslátt við launasetningu ómissandi kvennastétta. Þessu þarf að breyta og BSRB styður leiðréttingu launa kvennastétta og þar með viðurkenningu á verðmæti þeirra fyrir samfélagið allt.