Betur í stakk búin en áður

„Við eigum að vera óhrædd að miðla „bestu lausnum“ sem virka vel í okkar starfi og leita ótrauð annarra viðhorfa og lausna á meðal samkennara innan eða utan skólans okkar,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ í leiðara nýrrar Skólavörðu.
Magnús Þór Jónsson skrifar:
„Kæru kennarar, þá lítur dagsins ljós ný Skólavarða. Að venju hefur útgáfusviðið okkar lagt sig fram um að skila áhugaverðu efni úr okkar ranni til félagsfólks og vert að hrósa þeim fyrir öflugt blað enn á ný.
Það er sannarlega verðugt verkefni að varpa ljósi á störf okkar með nemendum okkar á ólíkum aldri, allt frá því þegar þau koma ómálga að mestu inn í leikskólana okkar og í gegnum ferðalag grunn-, tónlistar- og framhaldsskólans. Þau störf birtast of sjaldan í íslenskum fjölmiðlum og því er mikilvægi Skólavörðunnar mikið, sem og önnur vinna sem varpar ljósi á verkefnin okkar í skólum landsins.
Skólakerfi hvers tíma hafa fengið áskoranir samfélags hvers tíma. Það hefur sannarlega ekki breyst þó okkur finnist við alltaf upplifa nýjan og flóknari heim hvert sinn. Þessa dagana getum við nefnt nýjasta tækniundrið, gervigreindina. Sú breyting hefur vakið enn á ný umræðu um gildi skólastarfs, líkt og fyrri umræða um tæknibyltingar sem hafa kallað á viðbrögð skólakerfisins. Við erum enn að vinna með snjallvæðinguna, þar á undan var það heimur internetsins, sem kom í kjölfar tæknibyltingarinnar sem almenn tölvueign var. Ég hef heyrt eldri kennara rifja upp þegar myndbönd komu inn sem mögulegt kennsluefni og mikill vinur minn sem kenndi stærðfræði á þeim tíma sem vasareiknirinn birtist fór reglulega yfir þegar það verkefni datt inn í skólann.
Ég er handviss að við erum miklu betur í stakk búin að aðlaga okkur breyttum áherslum en áður.
Þá, eins og með gervigreindina nú, varð umræðan um gildi menntunar, hvað væri „hið rétta“ í stöðunni og tilhneigingin oft á þann veg að lítil ástæða væri til að breyta um brag. Það er einfaldlega þannig að manneskjan er í grunninn íhaldssöm og finnst langbest að vinna með það sem hún þekkir. Það er öruggt og gott og hefur bara oftast reynst óskaplega farsælt....eða hvað?
Ég er handviss að við erum miklu betur í stakk búin að aðlaga okkur breyttum áherslum en áður. Það er held ég þannig að þróunin hefur verið örari en áður og samfélagið kallar ákveðnar eftir því að skólar leiki stærra hlutverk í að leiða vinnuna við að undirbúa börn hvers tíma undir komandi framtíð. Það hlutverk hefur aukist samhliða tækninýjungum og sannarlega a.m.k. jafn mikilvægt að bregðast við og það að finna leiðir til að nýta gervigreindina nemendum til heilla, rétt um það leyti sem við erum að fóta okkur í snjallvæðingunni.
Kennarar á öllum skólastigum og skólagerðum hafa undanfarin ár lagt sig mjög fram um að nýta möguleika á fjölbreyttum kennsluháttum og ólíkum tækifærum námsleiða skólastarfi og nemendum til heilla. Þar skipta upplýsingar okkur miklu máli. Við eigum að vera óhrædd að miðla „bestu lausnum“ sem virka vel í okkar starfi og leita ótrauð annarra viðhorfa og lausna á meðal samkennara innan eða utan skólans okkar. Það hafa ótal hjól verið fundin upp eða fullkomnuð og í okkar samfélagi, þar sem tengingar eru jafnvel enn sterkari og meiri en á meðal þeirra stærri, er það ákveðið lykilatriði að nýta það sem styrk okkar.
Tækninýjungar eru eitt og ósk samfélags um ríkara uppeldishlutverk er annað stórt verkefni sem ég held að við getum öll verið sammála um að sé ríkari krafa um að við sinnum en áður.

Íslenskir skólar eru samfélög. Þar þroskast nemendur, vaxa og dafna saman. Í samfélagi við hvert annað. Við kennararnir erum leiðsögufólkið í því samfélagi
Svarið við auknum fjölbreytileika samfélagsins hefur haft tilhneigingu til að rata inn í skólastarfið. Við getum þar horft til hugmyndafræðinnar um skóla fyrir alla (sem er að mínu viti betri lýsing en það sem kallað hefur verið skóli án aðgreiningar) og sterkrar innkomu í skólamálaumræðu upp úr síðustu aldamótum. Þar er sannarlega líka vert að horfa til umræðunnar um leikskóla fyrir öll börn strax við 12 mánaða aldurinn, en sú hefur farið hátt og víða, sem og stöðugt meira krefjandi verkefni nemenda sem ekki eiga íslensku sem móðurmál. Í öllum þessum tilvikum hefur umræðan of oft verið um skólann og kennarana en ekki í samtali við okkur.
Það samtal er auðvitað algert lykilatriði ef árangur á að nást. Við höfum greint það á undanförnum vikum og mánuðum að rödd kennara er að ná inn í fleiri kima umræðunnar um hlutverk skólans í uppbyggingu núverandi og komandi íslensks samfélags. Við ætlum okkur svo sannarlega enn stærra hlutverk í þeirri umræðu, enda erum við þeir sérfræðingar sem vinnum „á gólfinu“ með aðalleikurunum sjálfum, nemendum okkar.
Íslenskir skólar eru samfélög. Þar þroskast nemendur, vaxa og dafna saman. Í samfélagi við hvert annað. Við kennararnir erum leiðsögufólkið í því samfélagi, valdeflum nemendur okkar með þekkingu á viðfangsefnum námsins og leiðum vinnuna við aukna félagsfærni. Það hlutverk hefur verið ríkjandi þáttur í skólakerfum hvers tíma í gegnum aldirnar og verður áfram okkar lykilhlutverk!
Í Skólavörðunni nú sem áður er að finna áhugaverðar fréttir af vettvangi skólastarfsins.
Njótið lestursins, kæru kennarar!“