Bestu tónlistarmyndböndin verðlaunuð á Degi leikskólans 2016

Fréttir|6. nóvember 2015

Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla boða til keppni um bestu tónlistarmyndböndin og er tilefnið Dagur leikskólans 2016. Myndbandakeppnin er samvinnuverkefni FL, FSL, menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

Leikskólakennarar, leikskólastjórar og starfsfólk leikskólanna eru hvött til að virkja sköpunarkraftinn með nemendum og taka þátt í þessari skemmtilegu keppni.

Markmið keppninnar er að varpa ljósi á mikilvægi náms og starfs í leikskólum en um leið má ekki vanmeta skemmtanagildið. Efnisval er frjálst en myndböndin mega ekki vera lengri en þrjár mínútur. Minnt er á mikilvægi þess að fyrir liggi leyfi foreldra og forráðamanna þeirra barna sem koma fram í myndböndunum.

Bestu tónlistarmyndböndin verða sýnd í Bíó Paradís klukkan 13.30 á Degi leikskólans, sem að þessu sinni verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 5. febrúar – þar sem 6. febrúar ber upp á laugardag. Veitt verða þrenn verðlaun; fyrir besta myndbandið, frumlegasta myndbandið og skemmtilegasta myndbandið. 

Dómnefnd verður skipuð valinkunnum listamönnum; Snæbirni Ragnarssyni (Bibba í Skálmöld), Sögu Garðarsdóttur leikkonu og Sölku Sól Eyfeld tónlistarkonu.

Skilafrestur á tónlistarmyndböndum er 15. janúar 2016.

Myndböndum er hægt að hlaða upp á Vimeo eða YouTube en gæta verður þess að hafa læstan aðgang og láta lykilorð fylgja með ásamt slóð. Einnig er hægt að senda myndböndin sem Mp4 í tölvupósti eða skila á minnislykli í Kennarahúsið.

Orðsporið og Dagur leikskólans 2016


Orðsporið 2015 kom í hlut Kópavogsbæjar og sveitarfélagsins Ölfuss. Á myndinni eru Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi í Kópavogi, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, G. Ásgerður Eiríksdóttir leikskólastjóri, Gunnsteinn Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. 

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í níunda sinn – 5. febrúar næstkomandi. Hinn eiginlegi Dagur leikskólans er reyndar 6. febrúar en á þeim degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Markmið dagins er að beina sjónum að leikskólanum og því kraftmikla starfi sem þar fer fram á degi hverjum.

Viðurkenningin Orðsporið er veitt á Degi leikskólans og hefur svo verið undanliðin þrjú ár. Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem veitt er þeim sem þykja hafa skarað fram úr við að efla orðspor leikskólastarfs og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla leikskólabarna.

Ákveðið hefur verið að Orðsporið 2016 verði veitt þeim sem þykir hafa skarað fram úr við að fjölga körlum í hópi leikskólakennara. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningu; skilafrestur og hvert á senda tilnefningar verður auglýst innan skamms.

Orðsporið 2016 verður veitt við hátíðlega athöfn í bíó Paradís á Degi leikskólans, 5. febrúar 2016 klukkan 13.30.