Berjumst fyrir bættum kjörum umsjónarkennara
Nú nýlega hafa grunnskóla-kennarar samþykkt
Nú nýlega hafa grunnskólakennarar samþykkt kjarasamninga sína sem gera ráð fyrir nokkurri breytingu í starfsemi skólanna. Í þessum nýju samningum er margt gott en líka ýmislegt sem ég sakna. Þar væri hægt að minnast á margt en í þessari grein ætla ég sérstaklega að beina sjónum mínum að hinu mikla starfi umsjónarkennara sem enn og aftur var ekki sýndur nægjanlegur sómi í þessum samningum.
Kristján Sigurðsson, kennari á Stuðlum, B.Ed. í grunnskólakennarafræði, Dipl.Ed. í menntunarfræði og M.Ed. í kennslufræði skrifar:
Umsjónarkennarar eru án efa hryggjarstykki hvers skóla. Þeir sinna mýmörgum aukaverkum eins og allir þeir sem nálægt skólastarfi hafa komið vita. Góður umsjónarkennari er gulls ígildi, það veit ég sem fyrrverandi kennari og ekki síst sem fyrrverandi skólastjórnandi. Góður umsjónarkennari sameinar nemendahópa og vinnur með skólasamfélaginu að því að láta allt ganga vel. Hann á samskipti við foreldra, stjórnendur, sérkennara, námsráðgjafa, hjúkrunarfræðing, kennsluráðgjafa, sálfræðinga, eineltisteymi og þannig mætti lengi áfram telja. Því er það í raun óskiljanlegt að enn og aftur eru umsjónarkennarar eftirbátar t.d. náms- og starfsráðgjafa í launum.
Það leikur enginn vafi á því í mínum huga að umsjónarkennarar eiga að vera launahæstu starfsmenn grunnskólans, að undanskildum stjórnendum, því þeir sinna erfiðasta og mikilvægasta kennarastarfinu. Þetta fullyrði ég sem hef starfað sem umsjónarkennari, faggreinakennari, fagstjóri og skólastjórnandi í nokkrum grunnskólum. Það þarf að gera umsjónarkennarastarfið eftirsótt, þannig að hæfustu kennararnir sinni því og þeir finni að starf þeirra sé metið að verðleikum.
Í dag þurfa flestir umsjónarkennarar að sinna nemendum af mörgum þjóðernum og ótrúlega misjöfnum nemendahópum, þar sem nemendur með sérþarfir og greiningar af ýmsu tagi eru margir í hverjum hóp. Samviskusamur umsjónarkennari er vakinn og sofinn yfir nemendum sínum og öll getum við vonandi vitnað um það frá okkar skólagöngu hve góður umsjónarkennari hefur mikið að segja. Ég var sjálfur svo heppinn að hafa frábæran umsjónarkennara, hana Dóru, í mörg ár í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og það er margt sem ég á henni að þakka.
Ég tel að í næstu kjarasamningum kennara eigi sérstaklega að einbeita sér að umsjónarkennurum. Það á að hækka launin þeirra og gera þeim kleift að sinna starfi sínu vel með því að þeir fái til að mynda nægan tíma í stundatöflu til að sinna öllum þeim fjölmörgu verkum sem þeim eru falin. Að mínu mati hljóta allir kennarar í skólasamfélaginu að geta sameinast um þetta grundvallarmarkmið. Gerum umsjónarkennarastarfið eftirsótt meðal kennara og stöndum saman öll sem eitt í því að berjast fyrir bættum kjörum umsjónarkennara.
Áfram umsjónarkennarar!