Bergljót Einarsdóttir nýr fulltrúi FL í stjórn Vísindasjóðs
Fréttir|22. desember 2022

Bergljót Einarsdóttir verður fulltrúi FL í stjórn Vísindasjóðs FL og FSL þetta kjörtímabil, eða fram til ársins 2026. Hún hlaut um 57% atkvæða í kosningunni sem lauk nú á hádegi.
Tveir einstaklingar voru í framboði og skiptust atkvæði þannig:
Bergljót Einarsdóttir 57,36 %
Lilja Kristjánsdóttir 39,59 %
Auð atkvæði 3.05%

FL óskar Bergljótu til hamingju með kjörið og góðs gengis í verkefnum stjórnar Vísindasjóðs FL og FSL.