Bergið fær jólakortastyrk KÍ

Kennarasamband Íslands styrkir Bergið um 350 þúsund krónur.
Jólakortastyrkur KÍ rennur að þessu sinni til stuðnings- og ráðgjafarsetursins Bergsins. Kennarasambandið hefur ekki sent jólakort um langt árabil en þess í stað hefur sambandið látið fé af hendi rakna til stofnana, samtaka og félagasamtaka sem vinna að velferð barna og ungmenna.
Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, færði Sigurþóru Bergsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Bergsins, styrkinn í dag. Sigurþóra sagði styrkinn koma sér vel og sagði við tilefnið að hún væri mjög þakklát Kennarasambandinu fyrir að hugsa til Bergsins.
Hvað er Bergið?
Bergið headspace, eins og það heitir fullu nafni, var opnað í ágúst 2019 en þá hafði undirbúningur staðið yfir í eitt ár. Bergið er „fyrir ungt fólk á forsendum ungs fólks,“ og þjónustan kostar ekkert. Í Berginu er hægt að fá viðtal við fagaðila sem kortleggur vandann, veitir stuðning, fræðslu og ráðgjöf um þjónustu í samfélaginu og býr til brú milli kerfa. Þess má geta að um 40% þeirra sem leita til Bergsins eru á framhaldsskólaaldri.