Benedikt Barðason tekur við formennsku í FS
Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari við Verkmenntaskólann á Akureyri, var kosinn formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) á aðalfundi félagsins sem fram fór í Vestmannaeyjum 3. júní síðastliðinn. Benedikt gegndi áður embætti gjaldkera í stjórn FS.
Fráfarandi formaður er Ólafur H. Sigurjónsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla, en hann vék að eigin ósk úr stjórn félagsins. Ólafur á að baki níu ára feril í stjórn FS, þar af sem formaður í fimm ár og varaformaður í tvö ár. Hann hefur setið stjórnarfundi Kennarsambandsins í fímm ár. Ólafur óskaði nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum.
Stjórn Félags stjórnenda í framhaldsskólum skipa auk Benedikts formanns, Guðlaug M. Pálsdóttir, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Snjólaug Elín Bragadóttir, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, Verkmenntaskóla Austurlands og Þorbjörn Rúnarsson, Flensborgarskólanum. Varamenn í stjórn eru Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, Menntaskólanum á Akureyri, og Ægir Karl Ægisson, Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Formaður, stjórn og varamenn voru kosnir samhljóða.