Beint streymi frá ráðstefnu KÍ í Hörpu

Ráðstefnan Skóli nútíðar – vegvísir framtíðar verður send út á netinu að morgni þriðjudaginn 9. apríl.
Um 250 manns eru skráðir þátttakendur á ráðstefnu KÍ sem ber yfirskriftina Skóli nútíðar – vegvísir framtíðar sem fram fer í Silfurbergi, Hörpu, þriðjudagsins 9. apríl.
Dagskrá ráðstefnunnar er áhugaverð og fjölbreytt en inntakið eru niðurstöður viðamikillar viðhorfs- og þjónustukönnunar sem Kennarasambandið lét leggja fyrir félagsfólk í febrúar síðastliðnum. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, mun reifa það markverðasta sem er að finna í niðurstöðum könnunarinnar. Heiðursgestur á ráðstefnunni er Alison Louise Milner, lektor við Álaborgarháskóla, sem mun meðal annars fjalla um áskoránir á borð við ráðningar, starfsþróun og helgun í starfi.
Félagsfólk KÍ, sem ekki á heimangengt, getur fylgst með fyrri hluta ráðstefnunnar, frá 9:30 til 12:15. Eftir hádegi fara fram átta umræðutorg um ýmis málefni en þau verða tekin upp og birt á vef KÍ innan tíðar.