Baráttukveðjur streyma til Félags tónlistarskólakennara
Baráttukveðjur og stuðningsyfirlýsingar berast Félagi tónlistarskóakennara þessa dagana. Meðal þeirra sem hafa sent kveðjur eru sveitarfélögin Hornafjörður og Seltjarnarnes, Tónastöðin og Tónlistarskóli Ísafjarðar.
Stöndum þétt saman með bjartsýni að vopni
Tónlistarskóli Ísafjarðar sendir Félagi tónlistarskólakennara baráttukveðjur undir yfirskriftinni: Hvað er samfélag án tónlistar, hvað er líf án tónlistar?
„Tónlistarskólinn skipar stóran sess í okkar litla samfélagi. Við trúum því ekki fyrr en við tökum á því að sveitarfélög landsins álíti störf tónlistarkennara minna virði en annarra kennara.
Við skorum á samninganefnd sveitarfélaga að stefna ekki í voða því góða starfi sem fram fer í tónlistarskólum landsins.
Tónlistin er tungumál sálarinnar og á sér engin landamæri. Stöndum þétt saman með bjartýni að vopni."
Kveðjan var send 21. október og lesin upp á samræðufundi FT í Kaldalóni í Hörpu.
Baráttukveðjur frá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
„Landssamband Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna lýsir yfir fullum stuðningi við Félag tónlistarkennara, og aðgerðir þeirra til að ná fram bættum kjörum. LSS sendir tónlistarkennurum baráttukveðjur."
Fyrir hönd LSS skrifar Valdimar Leó Friðriksson framkvæmdastjóri undir kveðjuna, sem er dagsett 23. október 2014.
Kveðja frá kollegum í Noregi
Musikernes fellesorganisasjon, stéttarfélag tónlistarmanna og tónlistarkennara í Noregi, sendir Félagi tónlistarskólakennara baráttukveðjur. Kveðjan er svolhjóðandi: „Musikernes fellesorganisajon styður íslenska starfsfélaga í baráttunni fyrir sannngjörnum launum og viðunandi starfsaðstæðum. Tónlistarskólar eru undirstaða í tónlistar- og menningarlífi hvers lands og tryggja verður skólunum viðunandi starfsumhverfi. Þar skipta launakjör og starfsaðstæður kennara sköpum.“ Undir kveðjuna skrifar Hans Ole Rian, leiðtogi MFO.
Barátta fyrir listina og börnin
Tónastöðin sendi Félagi tónlistarskólakennara baráttukveðjur 21. október 2014. „Tónastöðin styður tónlistarkennara, því kjarabarátta ykkar er jafnframt barátta fyrir listina og börnin. (Alltaf heitt á könnunni í Tónastöðinni)" Undir kveðjuna skrifar Andrés Helgason.
Hvatning til samningsaðila
Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarness bókaði eftirfarandi á fundi sínum 22. október 2014. „Samningaviðræður milli FT og samninganefndar sveitarfélaga hafa nú staðið yfir í 10 mánuði. Tónlistarkennarar FT er eitt aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, en þeir eru um 5% félagsmanna og þeir einu sem enn hefur ekki verið samið við. Bæjarstjórn hefur miklar áhyggjur af, að brottfall verði úr nemendahópum ef þeir fara á mis við það stöðuga aðhald og leiðsögn sem sérfræðingur í listkennslu getur veitt. Einnig er ófyrirséð hver áhrif langvarðandi verkfalls verða, t.d. m.t.t. hugsanlegs brottfalls nemenda.
Bæjarstjórn hvetur samningsaðila til að ræða saman og leita leiða til að ná samningum svo núverandi verkfall valdi sem minnstum skaða fyrir nemendur og hið góða starf sem unnið er í Tónlistarskóla Seltjarnarness.“ Undir bókunina skrifa Guðmundur Magnússon, Ásgerður Halldórsdóttir, Bjarni Torfi Álfþórsson, Sigrún Edda Jónsdóttir, Margrét Lind Ólafsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Árni Einarsson.
Baráttukveðjur frá kennurum á Vesturlandi
Kennarafélag Vesturlands sendi Félagi tónlistarskólakennara baráttukveðjur 24. október síðastliðinn. Þá birtist á vefsíðu félagsins svohljóðandi stuðningsyfirlýsing: „Kennarafélag Vesturlands samþykkti á nýliðnum aðalfundi að lýsa yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarskólakennara og stjórnenda tónlistarskóla í Félagi tónlistarskólakennara, FT.
Við hvetjum samninganefnd sveitafélaga til að gera allt sem í sínu valdi stendur til að ná sáttum sem fyrst. Það er ólíðandi að ein stéttin enn innan Kennarasambands íslands sé neydd til að grípa til aðgerða til að ná fram sambærilegum launum og aðrar stéttir innan félagsins. Baráttukveðjur frá félögum KFV“.
Unnið verði að sáttum
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar bókaði eftirfarandi á fundi sínum þann 20. október: „Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar hvetur samninganefndir Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að vinna að heilum hug að sáttum og semja á grunni sem styður bæði við menntun og það mikilvæga starf sem tónlistarskólakennarar sinna og vonar að ekki komi til verkfalls.“
Kveðjan var send 20. október til samninganefnda FT og SNS.
Stöndum vörð um íslenska menningu
„SÍM – Samband íslenskra myndlistarmanna lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarkennara og réttmætum kröfum þeirra um sanngjarna leiðréttingu launa sinna. Verkfall er neyðarúrræði í kjarabaráttu sem bitnar hvað verst á þeim sem síst skyldi, í þessu tilfelli ungum tónlistarnemendum. Tónlistarskólakerfi Íslendinga hefur vakið athygli og aðdáun um allan heim hvort sem um er að ræða vegna gæða, útbreiðslu þess eða víðtæks hlutverks á sviði lista, mennta-, menningar- og samfélagsmála. Það tekur aðeins örskamma stund að brjóta niður margra áratuga uppbyggingarstarf, stöndum vörð um menningu á Íslandi.
SÍM skorar á viðsemjendur tónlistarkennara að leggja allt kapp á að samningar takist sem allra fyrst.“
Kveðjan frá SÍM var lesin upp á samræðufundi FT í Kaldalóni að kvöldi 21. október 2014.
Kennarar í VMA lýsa eindregnum stuðningi við kjarabaráttu Félags tónlistarskólakennara
„Um hundrað manna kennarafundur í Verkmenntaskólanum á Akureyri, haldinn 17. október 2014, lýsir yfir eindregnum stuðningi við launakröfur tónlistarkennara. Jafnframt skorar fundurinn á sveitarfélögin í landinu að ganga nú þegar til samninga við tónlistarkennara þannig að ekki komi til boðaðs verkfalls þeirra í næstu viku. Fundurinn telur óviðunandi að sveitarfélögin, sem þegar hafa samið við grunn- og leikskólakennara, dragi það á langinn að semja við þennan hóp kennara um sambærileg kjör og lítilsvirða þar með starf sem fram fer í tónlistarskólum um land allt.“
Baráttukveðjurnar voru fluttar á fundi FT í Kaldalóni 22. október síðastliðinn.