Baráttufundur í dag

Fréttir|31. mars 2014

Baráttufundur verður haldinn í Verkfallsmiðstöðinni í Framheimilinu í dag og stendur fundurinn frá klukkan 13 til 15. Dagskrá er sem hér segir:

 

13:00

Skólahljómsveit Kópavogs flytur Sónatu úr Die Bankelsangerlieder

 

Hljómsveitina skipa: Auður Skarphéðinsdóttir, túba, Helga Mikaelsdóttir, horn, Herdís Ágústa Linnet, trompet, Björg Steinunn Gunnarsdóttir, básúna, Ingibjörg Ragnheiður Linnet, trompet og Katrín Guðnadóttir, horn. 

Stjórnandi: Carlos Caro Aquilera

13:10

Setning: Guðríður Arnardóttir formaður Félags framhaldsskólakennara

13:25

Ávarp: Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur

13:45

Skólahljómsveit Kópavogs Lærdómsblúsinn eftir Hjördísi Önnu Matthíasdóttur og Vilhjálm Guðmundsson

 

Hljómsveitina skipa: Hjördís Anna Matthíasdóttir, básúna og söngur,  Vilhjálmur Guðmundsson, básúna og söngur

Meðleikur: Össur Geirsson, píanó        

14:00

Ræða: Aðalheiður Steingrímsdóttir fyrrverandi formaður FF

 

Ályktun borin upp

 

Fundarstjóri: Ægir Karl Ægisson formaður siðaráðs KÍ og félagi í FS

Fundurinn verður sendur út á netinu og má nálgast slóð fundarins hér: http://netsamfelag.is/. Félagsmenn í FF og FS eru hvattir til að mæta á fundinn. Það er jafnframt ósk FF og FS að félagar komi saman á landsbyggðinni, hlusti á fundarmenn og samþykki ályktun fundarins.