Baráttufundur á RÚV klukkan 19:40

Vegna samkomubanns verða hvorki kröfugöngur né baráttufundir þann 1. maí. Þess í stað verður baráttu- og skemmtidagskrá á RÚV.
Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu er brugðist með útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjónvarpað á RÚV (kl. 19:40).
Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá forystu stéttarfélaga einkenna þennan viðburð sem verður að teljast sögulegur. Meðal listamanna sem koma fram eru Ragnheiður Gröndal, Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P og Króli, Ellen Kristjáns og Auður, Jakob Birgisson uppistandari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins.
Að dagskránni í sjónvarpinu og viðburðum á samfélagsmiðlum standa eftirfarandi heildarsamtök launafólks: ASÍ, BHM, BSRB og KÍ.
KÍ hvetur alla til þátttöku á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins á Facebook og til að horfa á skemmtidagskrána á RÚV um kvöldið.