Baráttufundur á Ingólfstorgi

Fréttir|14. maí 2014

Efnt verður til baráttufundar á Ingólfstorgi klukkan 10 í dag, fimmtudag. Einnig verða haldnir baráttufundir víðar um landið. Kennarar sem og allir þeir sem láta sig skólamál varða eru hvattir til að mæta og sýna stuðning í verki. 

Í Reykjavík mun Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, halda ávarp á fundinum, áskorun fundarins til sveitarstjórnarmanna verður lesin upp og Pollapönk flytur nokkur lög. Að dagskrá lokinni munu fundarmenn ganga fylktu liði frá Ingólfstorgi, yfir Austurvöll og að Ráðhúsinu þar sem borgarstjóra verður afhent formlega yfirlýsing frá grunnskólakennurum. Að þessu loknu koma kennarar saman í Framheimilinu í Safamýri þar sem boðið verður upp á kaffisopa og kleinur.

Af samningaviðræðum er það að frétta að fundað var hjá sáttasemjara til klukkan sex í morgun. Viðræður halda áfram í dag og er gert ráð fyrir að fundarhöld hefjist um klukkan þrjú. Frekari upplýsingar verða birtar á ki.is um leið og málin skýrast.

Stjórn vinnudeilusjóðs kemur saman í dag og tekur ákvörðun um hvernig greiðslum úr vinnudeilusjóði verður háttað vegna vinnustöðvunarinnar. Upplýsingar verða sendar út um leið og þær liggja fyrir.

Verkefnastjórn vegna vinnustöðvunar svarar fyrirspurnum félagsmanna í gegnum netfangið vinnustodvunfg@gmail.com.