Baráttufundur á Akureyri
Grunnskólakennarar á Akureyri létu sitt ekki eftir liggja í dag og kröfðust betri kjara á vinnustöðvunardegi. Gengið var frá Brekkuskóla að ráðhúsinu, umferð stoppuð á meðan og ályktun sem samin var á samstöðufundi í Lóni við Hrísalund, afhent fulltrúa bæjarins. Ályktunin kennara er sem hér segir:
Fundur Bandalags kennara á Norðurlandi eystra haldinn fimmtudaginn 15. maí 2014, krefst þess að sveitarstjórnarmenn samþykki þegar þá sanngjörnu kröfu að laun grunnskólakennara verði leiðrétt. Engin rök eru fyrir því að laun kennara séu lægri en hjá öðrum hópum sem sinna sambærilegum verkefnum, bera sömu ábyrgð og þar sem krafist er fimm ára háskólamenntunar.
Grunnskólakennarar krefjast þess að lokið verði við samninga hið fyrsta svo ekki þurfi að koma til frekari röskunar á skólastarfi. Vinnustöðvun er neyðarúrræði sem kennarar eru nú þvingaðir í vegna seinagangs viðsemjenda við samningsgerðina. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir í 2 ár og nú er þolinmæði þeirra á þrotum.
Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara í yfirstandandi viðræðum við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.