Bakslag í réttindabaráttu – þögnin er ekki hlutlaus

Fréttir|22. ágúst 2022

„Í skólum eru viðhorf nemenda mótuð. Í kennslustofunni, á skólalóðinni eða á göngunum er viðhorfum nemenda annað hvort viðhaldið eða breytt. Skólakerfið hefur skyldum að gegna. Jafnrétti verður aldrei náð án aðkomu menntakerfisins,“ segir í nýrri yfirlýsingu jafnréttisnefndar Kennarasambandsins.

Yfirlýsingin hljóðar svo:

Flest okkar eru meðvituð um misréttið sem ríkir á milli hópa í samfélagi okkar, hvort heldur sem er á grundvelli litarháttar, hinseginleika, kyns, stéttar eða annarra þátta. Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands hefur verið og er þeirrar skoðunar að skólakerfið gegni lykilhlutverki sem jöfnunartæki við leiðréttingu á því ójafnrétti sem er inngróin í menningu okkar.

Í ljósi þess að samfélagið hefur horfst í augu við bakslag í réttindabaráttu ólíkra hópa undanfarið, þá vill Jafnréttisnefnd KÍ árétta, hvetja til og minna á að skólakerfið hefur skyldum að gegna. Grunnþættir menntunar eru meðal annars lýðræði, jafnrétti og mannréttindi – hver og ein kennslustofa á að endurspegla þessi gildi í öllum samskiptum, aðferðum og inntaki. Hver og einn kennari og nemandi á að vera öruggur í starfi sínu og námi. Hver og einn nemandi á samkvæmt lögum að fræðast um misrétti, forréttindi og fjölbreytileika.

Að viðurkenna vandann er fyrsta skrefið og getur breytt miklu, að vinna markvisst með vandann getur upprætt hann.

Jafnrétti á milli einstaklinga og hópa er sjálfsagt réttlætismál. Rasismi, hinseginfordómar, kvenfyrirlitning eða aðrar birtingarmyndir ójafnréttis eru mannanna verk. Hver og einn kennari og stjórnandi skóla þarf að vera vakandi fyrir valdatengslum, öráreitum, jaðarsetningu, kynferðiseinelti og öðru ofbeldi sem er oft bæði leynt og ljóst í skólunum okkar. Að viðurkenna vandann er fyrsta skrefið og getur breytt miklu, að vinna markvisst með vandann getur upprætt hann.

Í skólum eru viðhorf nemenda mótuð. Í kennslustofunni, á skólalóðinni eða á göngunum er viðhorfum nemenda annað hvort viðhaldið eða breytt. Jafnrétti verður aldrei náð án aðkomu menntakerfisins. Þögnin er ekki hlutlaus. Kennarar þurfa og eiga að vera hluti af lausninni – ekki vandanum. 

 

- Jafnréttisnefnd KÍ