Austurbæjarskóli bar sigur úr býtum í keppni í fjármálalæsi

Krakkarnir í 10. bekk Austurbæjarskóla eru sigurvegarar Fjármálaleikanna 2023. Fjallað er um keppnina í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
Krakkarnir í 10. bekk Austurbæjarskóla eru sigurvegarar Fjármálaleikanna 2023. Fjármálaleikarnir eru keppni í fjármálalæsi sem stóð yfir dagana 1.-10. mars þar sem yfir fimmtán hundruð nemendur í 10. bekk í 42 grunnskólum víðs vegar á landinu tóku þátt. Fyrir sigurinn fær Austurbæjarskóli að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppnina í fjármálalæsi sem haldin verður í Brussel 16. maí næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem Austurbæjarskóli fer með sigur af hólmi í Fjármálaleikunum, af þeim sex skiptum sem þeir hafa verið haldnir.
Sigrún Lilja Jónasdóttir, stærðfræðikennari sigurvegaranna, segir góðan árangur krakkanna hafa náðst með mikilli hvatningu og liðsheild, en hver þátttakandi svaraði 64 fjölbreyttum spurningum í netleik, sem snúast m.a. um það að geta reiknað vexti á lánum og sparnaði, að vita um hvað tryggingar snúast, þekkja réttindi og skyldur á vinnumarkaði, átta sig á lífeyrissparnaði og kunna ýmislegt um t.d. gengissveiflur og verðlagsþróun.
„Ég tel ástæðuna fyrir góðu gengi skólans í Fjármálaleikunum undanfarin ár vera að í Austurbæjarskóla er snemma lögð áhersla á prósentureikning og þegar komið er í 10. bekk eru krakkarnir komnir með nokkuð góðan grunn,“ segir Sigrún Lilja jafnframt.
Efstu þrír skólarnir hafa allir verið í verðlaunasætum síðustu árin en í öðru sæti var Grunnskóli Fjallabyggðar, sigurvegarinn frá því í fyrra, og í þriðja sæti Tjarnarskóli sem hefur staðið sig vel í keppninni undanfarin ár.

Krakkarnir í 10. bekk Austurbæjarskóla eru sigurvegarar Fjármálaleikanna 2023. Þetta er í annað sinn sem Austurbæjarskóli vinnur sigur á leikunum, af þeim sex skiptum sem þeir hafa verið haldnir.
Evrópukeppnin í Fjármálalæsi
Fjármálaleikarnir eru undankeppni fyrir Evrópukeppni þar sem fjölmargir nemendur allsstaðar að úr Evrópu hittast og etja kappi um Evróputitil grunnskóla í fjármálalæsi. Evrópsku bankasamtökin (EBF) standa að keppninni en þau hafa, ásamt aðildarsamtökum víða í Evrópu, lagt ríka áherslu á mikilvægi þess að efla fjármálalæsi ungmenna. Samtök fjármálafyrirtækja á Íslandi, sem eru aðilar að EBF, eru þar engin undantekning, en flaggskip samtakanna þegar kemur að fjármálafræðslu ungmenna er fræðsluvettvangurinn Fjármálavit sem rekinn er í samvinnu við Landssamtök lífeyrissjóða.
Fjármálavit
Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum fjármálafyrirtækja, segir markmiðið með Fjármálaviti fyrst og fremst vera að vekja athygli á mikilvægi fjármálalæsis hjá ungu fólki og hvetja kennara og skólastjórnendur til dáða í kennslu, m.a. með því að halda keppni í fjármálalæsi og bjóða frían aðgang að kennsluefni og námskeiðum fyrir kennara um fjármál. Kristín segir kennara mjög ánægða með framtak Fjármálavits og fagna því almennt sem góðri viðbót við það námsefni og kennslu sem þegar er í skólunum.

Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum fjármálafyrirtækja.
Kennsla í fjármálalæsi hefur áhrif á niðurstöðurnar
„Fjármálalæsi virðist víða kennt í grunnskólum landsins, en er þó oftast fléttað inn í aðra kennslu, stærðfræðikennarar kenna prósentureikning, heimilisfræðikennarar fara yfir heimilisfjármálin o.s.frv. Tilgangur Fjármálavits er að styðja við þessa kennara og stuðla að því að fjármálalæsi fái meira pláss og vægi inn í aðalnámskrá grunnskóla.“
„Krakkar í dag byrja ungir að vinna og standa nánast daglega frammi fyrir ákvörðunum um ráðstöfun peninga sem krefjast skilnings og þekkingar á fjármálum. Því fyrr sem krakkar fá skipulagða fræðslu, því betur eru þeir búnir fyrir fjármálaáskoranir framtíðarinnar. Við sjáum jafnframt að þeir skólar sem hafa staðið sig vel í keppninni og hafnað í efstu sætunum undanfarin ár eiga það flestir sameiginlegt að kenna fjármálalæsi í einhverri mynd.“
Krakkar í dag byrja ungir að vinna og standa nánast daglega frammi fyrir ákvörðunum um ráðstöfun peninga sem krefjast skilnings og þekkingar á fjármálum.
Reynsla af fjármálum eykur færni
Þátttakendur í Fjármálaleikunum koma almennt best út í þekkingu á eigin fjármálum og fjármálum er varða þeirra nærumhverfi, eins og heimilisrekstur. Má þar nefna almennan skilning á vöxtum og vaxtavöxtum og áhrifum þeirra á lán og sparnað, verðsamanburð og daglega eyðslu, greiðslukort og verslun á netinu, rekstur bíls, íbúðarlán, húsaleigu og tryggingar. Hér spilar reynsla þeirra af fjármálaþjónustu stórt hlutverk því sá lærir sem reynir, en flestir unglingar á Íslandi hafa kynnst greiðsluöppum sem auðvelda þeim lífið og veita þeim aukið sjálfsöryggi þegar kemur að fjármálum.
Hins vegar reynir töluvert meira á þátttakendur þegar spurt er um réttindi og skyldur þeirra á vinnumarkaði og þætti sem hafa áhrif á fjármál ríkis og sveitarfélaga. Þar koma við sögu ýmis stærri og flóknari hugtök á borð við persónuafslátt, launaseðil, tekjuskatt, lífeyrissjóð, orlof, stéttarfélag, launaþróun og launamun, vísitölu neysluverðs, verðbréf, hlutabréf, dreifingu áhættu, gengi gjaldmiðla, verðtryggingu og áhrif verðbólgu svo lítið eitt sé nefnt. Lakari árangur á þessu sviði á ekki að koma á óvart því um töluvert flókin fræði er að ræða sem mikilvægt er að kunna en þátttakendur kynnast lítið í sínu daglega lífi á unga aldri og hafa ekki reynslu af. Hér er tækifæri til að bæta í hvað varðar fræðslu í skólum.
Dagur og Kristján verða fulltrúar Íslands
Þeir Dagur Thors og Kristján Oddur Kristjánsson hafa verið valdir úr flottum hópi nemenda til að vera fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni í Brussel í maí næstkomandi. „Við erum mjög þakklátir fyrir að hafa verið valdir í þetta verkefni og ætlum að standa okkur vel, í raun er markmiðið auðvitað að sigra, hvað annað?“
Sigrún er ekki óvön svona ferð en árið 2018 fór hún með nemendur sína í keppnina með góðum árangri en þá hafnaði Ísland í 6. sæti eftir harða keppni. „Ég hef mikla trú á krökkunum mínum í Austurbæjarskóla, eftir að hafa fylgst með Íslandi í þessari keppni í Evrópu undanfarin ár þá erum við að standa okkur nokkuð vel þegar kemur að fjármálalæsi. En betur má ef duga skal og það er mitt mat að kennsla í fjármálalæsi eigi að vera markviss strax í grunnskóla svo allir krakkar fái að kynnast grundvallarþáttum fjármála einstaklinga. Við verðum að nesta þau vel út í lífið með því að kenna þeim grundvallaratriðin.“
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.