Aukum umræðu um kennarastarfið

Fréttir|11. maí 2016

Er hægt að breyta ímynd heillar stéttar með því að nota Facebook og aðra samfélagsmiðla? Getur ein vefsíða um skólamál aukið umræðu í fjölmiðlum og samfélaginu öllu um kennarastarfið og menntamál? Það er ekki víst en starfsmenn Kennarasambandsins telja engu að síður að það sé tilraunarinnar virði.

Það er ekki þar með sagt að ímynd kennara sé sérstaklega slæm eða að málefni sem tengjast skólum rati aldrei í fjölmiðla. Hins vegar eiga fréttir af til dæmis einelti nemenda, deilum kennara og skólastjórnenda, lokunum skóla vegna myglusvepps og öðru álíka greiða leið á síður dagblaða og í fréttatíma sjónvarps og útvarps. Það þarf hins vegar að hafa meira fyrir því að koma að fréttum um það gríðarlega mikla faglega starf sem fram fer innan veggja sömu skóla á hverjum degi. Ef bætt er við að stór hluti fullorðinna Íslendinga hefur þá mynd í höfðinu að skólastarf í dag fari fram nákvæmlega eins og það gerði meðan þeir voru í skóla, og það er ljóst að sú mynd er ekki rétt. Verkefnið framundan er að breyta þessu. Sú spurning sem starfsmenn KÍ fóru af stað með í lok síðasta árs var hvaða leiðir væru færar til þess. Eftir mikla vinnu var grunnniðurstaðan afar einföld. Stofnuð var grúppa á Facebook.

Facebook-grúppa og ný heimasíða
Það blasir auðvitað við að ein slík grúppa breytir engu, þrátt fyrir að heita „Aukum umræðu um kennarastarfið“. Hún er hins vegar miðdepill hugmyndafræði og vinnulags sem KÍ hefur unnið að síðustu mánuði. Markmiðið var að búa til einfalt tæki fyrir kennara, skólastjórnendur og aðra áhugasama til að safna saman ábendingum um áhugaverð verkefni eða umfjallanir um skóla- og menntamál. Í raun hefur þar verið skapað samfélag áhugafólks um aukna umræðu um kennarastarfið og menntamál, alls staðar að af landinu og af öllum skólastigum.

Hugmyndafræðin er síðan einföld. Sjái menn áhugaverða grein í dagblaði, myndband á vefnum, umfjöllun í héraðsfréttablaði, fréttaskýringu í sjónvarpi eða eitthvað annað sem þeim finnst eiga erindi við fleiri kennara eða almenning þá þarf ekki að gera annað en að fara inn á Facebook og senda inn ábendingu. Það er síðan starfsmanna KÍ að taka við henni og koma málinu áfram. Til þess hafa nú verið smíðuð alls kyns tæki og tól. Kennarasambandið og aðildarfélög þess eru í dag afar virk á Facebook og Twitter og þau samskiptanet gagnast vel til að vekja athygli á margvíslegum málum. Einnig ­hefur KÍ nú látið smíða vefsíðuna skolavardan.is og er henni ætlað að vera öflug fréttaveita um skóla- og menntamál. KÍ hefur einnig komið sér upp neti blaðamanna, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanna sem hafa áhuga á að starfa fyrir kennara. Ef ábendingar berast um að skóli eða kennari vinni að áhugaverðu verkefni er hægt að senda einhvern úr þessum hópi á staðinn til að fjalla um málið. Hugmyndafræðin er að í staðinn fyrir að bíða eftir því að hefðbundnu fjölmiðlarnir fjalli um einstök verkefni og málefni kennara þá ætlum við að gera það sjálf. Þeir möguleikar sem samfélagsmiðlar bjóða upp á verða síðan nýttir til að koma þessu efni á framfæri. Þar verður horft til almennings, en það skiptir þó ekki síður máli að kennarar hafi möguleika á að segja kollegum sínum frá því sem þeir sýsla við dags daglega.

Afl kennara virkjað
En hugmyndafræðin gengur lengra því KÍ ætlar markvisst að þjálfa kennara í notkun samfélagsmiðla. Fyrstu skrefin í því hafa þegar verið stigin með fimm námskeiðum þar sem Maríanna Friðjónsdóttir hefur kennt þátttakendum grunnatriði við notkun samfélagsmiðla. Námskeiðin gengu afar vel og komust færri að en vildu. Maríanna er sannfærð um að með réttu skipulagi og réttum vinnubrögðum geti kennarar náð árangri við að koma sér á framfæri. „Með því að leggjast sameiginlega á árarnar hafa kennarar möguleika á því að veita innsýn í jákvætt, öflugt og gefandi starf sem vinnur fyrst og fremst að því að senda samfélaginu heilsteypta einstaklinga. Með því að segja sameiginlega frá starfinu og á þann hátt að bæði foreldrar, aðrir kennarar, nemendur og samfélagið sem heild fái aukinn skilning á mikilvægi kennarastarfsins, er afl íslenskra kennara virkjað til að styrkja ímynd starfsins til framtíðar,“ segir Maríanna. Hún bætir við að kennarastéttin sé í dag svo heppin að þurfa ekki lengur að treysta einvörðungu á ritstjórnir dagblaða, sjónvarpsstöðva og útvarpsstöðva til að segja fréttir af kennslu- og skólamálum.

„Kennarar geta komið sér upp eigin fréttastofum/-miðlum með litlum tilkostnaði þar sem möguleikinn á að miðla lifandi frásögn liggur hjá kennurunum sjálfum. Með því að skapa færni, setja dreifingarleiðirnar upp á réttan hátt og tengja saman eru kennarar nú tilbúnir til að reka eigin stafræna miðlun og ná til stærri markaðar en áður hefur þekkst,“ segir Maríanna.

Rétt er að taka fram að öll fimm námskeiðin sem þegar hafa verið haldin fóru fram í Reykjavík. Þessa dagana er verið að leggja drög að röð námskeiða á landsbyggðinni. Þar sem mikil ánægja hefur verið með námskeið Maríönnu leggur KÍ áherslu á að hún komi áfram að þeirri fræðslu sem er framundan. Maríanna er hins vegar mikið bókuð næstu vikurnar og því ljóst að ekki næst að halda þessi námskeið fyrr en á haustdögum. Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með en námskeiðin verða auglýst meðal félagsmanna um leið og dagsetningar og staðsetningar liggja fyrir.

Áhersla á jákvæð skilaboð
Segja má að fulltrúar á ársfundi Kennarasambands Íslands í fyrra (2015) hafi lagt drögin að þeirri hugmyndafræði sem nú er unnið að því að innleiða. Þar var tekin umræða um ímyndarmál og lögð áhersla á að virkja sem flesta í að fjalla um starfið sitt á jákvæðan hátt. Málið var aftur tekið fyrir á ársfundi KÍ á þessu ári, en hann fór fram á Grand Hótel Reykjavík 15. apríl síðastliðinn. Þar var fundarmönnum skipt upp í hópa sem allir spreyttu sig á eftirtöldum spurningum.

  • Hvernig aukum við umræðu um kennarastarfið og skóla- og menntamál?
  • Hvernig virkjum við fleiri í umræðunni?
  • Hvernig höldum við þessu starfi áfram?

Út úr því starfi komu fjölmargar hugmyndir, sem flestar miða að því að halda áfram á þeirri leið sem mörkuð hefur verið. Mikilvægt sé að nýta samfélagmiðla sem best, virkja kennara sjálfa í að taka myndir, vinna myndbönd og skrifa greinar um dagleg viðfangsefni. Þessi vinna þarf að mati ársfundarfulltrúa að fara fram þvert á skólastig og nýta þarf öll tækifæri sem gefast til að koma jákvæðum skilaboðum á framfæri. Þetta er verkefni sem tekur langan tíma en með sameiginlegu átaki verður eflaust hægt að ná árangri.  

Aukum umræðuna á Facebook. 

Greinin var birt í Skólavörðunni, 1. tbl. 2016.