Aukinn sveigjanleiki í framhaldsskólum

Fréttir|13. nóvember 2020

Heilbrigðisráðherra hefur birt nýjar sóttvarnareglur, vegna COVID-19, sem taka gildi á miðvikudag í næstu viku. Helstu breytingar varða framhaldsskóla og íþróttastarf grunnskólabarna.

Breytingar verða á skólastarfi þegar nýjar sóttvarnareglur taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi. Sveigjanleiki verður aukinn í framhaldsskólum þannig að í öllum hópum á framhaldsskólastigi verður 25 manna hámark, með tveggja metra reglu. Þetta hefur aðeins átt við um fyrsta árs nema en gengur nú yfir alla árganga. 

Áfram verður grímuskylda í framhaldsskólum þar sem ekki er hægt að framfylgja tveggja metra reglu, svo sem í verklegu námi og listnámi. Viðburðir, sem ekki tengjast kennslu, verða áfram bannaðir. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. 

Íþrótta- og tómstundastarf

Íþróttir barna og ungmenna, með eða án snertingar, heimilaðar. Á þetta við um börn í 1. til 10. bekk. Ekki verða takmarkanir er kemur að blöndun hópa. Þá segir á vef Stjórnarráðsins að leikskólabörn og börn í 1. til 4. bekk megi vera mest 50 saman en nemendur í 5. til 10. bekk mest 25. 

Reglugerðin tekur gildi 18. nóvember og gildir til 2. desember.