Aukaþingi KÍ frestað til næsta árs

Fréttir|27. nóvember 2020

Rafrænu aukaþingi KÍ hefur verið frestað til næsta árs. Tillaga þess efnis var samþykkt með yfirburðum við upphaf fundar í dag.

Um 240 fulltrúar KÍ luku störfum á aukaþingi KÍ skömmu eftir hádegi í dag en þá var ákveðið að fresta þingi til næsta árs. Fram kom tilllaga, flutt af Ragnari Þór Péturssyni, formanni KÍ, um að fresta þingstörfum til næsta árs.

 

Tillagan hljóðaði svo: 

Rafrænt aukaþing KÍ 26.-27. nóvember samþykkir að fresta þingstörfum og þar með þeim dagskrárliðum sem eftir eru. Þingi skal haldið áfram að afloknum ársfundi KÍ eigi síðar en 30. apríl 2021.

Greinargerð tillögunnar hljóðar svo: Ítrekuð ósk hefur komið fram á aukaþingi KÍ um aukinn undirbúning og umræðu þingfulltrúa vegna tillagna milliþinganefndar sem bárust seinna en áætlanir stóðu til. Tillaga um að fresta lagabreytingum til næsta reglulegs þings var felld með naumum meirihluta í gær þann 26. nóvember. Ljóst er að þingundirbúningur var mjög misjafn í aðdraganda þings og þótt stór hluti þings telji sig tilbúinn í umræður og afgreiðslu mála telur þing rétt að gefa þeim aukinn tíma sem þurfa. Sá tími skal nýttur af stjórn KÍ til að stuðla að málefnalegri umræðu með reglulegum hætti á milli aðildarfélaga fram að næsta ársfundi og framhaldi þings.

Tillagan var borin undir félagsmenn og fór atkvæðagreiðsla þannig að já sögðu 175, nei sögðu 20.

Niðurstaðan var afgerandi og frestaði þingforsetinu þinginu í kjölfarið.

Þar með lauk aukaþingi KÍ í bili, þingi sem er sögulegt fyrir þær sakir að slíkt þing hefur ekki áður verið haldið og þá fór þingið fram á netinu sem er nýlunda en skýrist auðvitað af COVID-19.

Þinggögn, skýrslur, myndbönd um efni aukaþings KÍ 2020