Aukaþing KÍ
Fréttir|9. mars 2020

Aukaþing KÍ fer fram dagana 29. og 30. október 2020.
Á síðasta þingi Kennarasambands Íslands var samþykkt að skipa milliþinganefnd og halda aukaþing á árinu 2020 um lokaskýrslu nefndarinnar. Aukaþingið hefur það hlutverk að taka afstöðu til tillagna um skipulag, starfsemi og rekstur KÍ.
Til stóð að halda aukaþing KÍ nú í apríl en tekin hefur verið ákvörðun um að fresta því til 29. – 30. október nk.
Samþykkt um milliþinganefnd um skipulag, starfsemi og rekstur KÍ.