Aukafundur vegna stöðu kjaraviðræðna
Fréttir|23. október 2024

Fundað verður á Teams á morgun, fimmtudaginn 24. október, klukkan 16.00.
Vegna eftirspurnar er boðað er til auka upplýsingafundar með félagsfólki vegna stöðu kjaraviðræðna og verkfallsaðgerða, sem hefjast í ellefu skólum í október og nóvember, hafi samningar ekki náðst.
Fundurinn, sem ætlaður er öllu félagsfólki, fer fram í streymi á morgun, fimmtudaginn 24. október, klukkan 16.00 til 16:50.
Farið verður yfir stöðu mála í kjaraviðræðum KÍ við samninganefndir sveitarfélaga og ríkis. Fundarstjórn verður í höndum Jónínu Hauksdóttur, varaformanns KÍ, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fer yfir samningamálin.
Hægt er að kynna sér málin betur á hér á vef KÍ.