Aukaaðalfundur FF um málefni Vísindasjóðs
Stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur boðað til aukaaðalfundar föstudaginn 8. apríl næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík og hefst kl 9. Megin efni fundarins verður umræða um málefni Vísindasjóðs FF og FS, en í bréfi sem Guðríður Arnardóttir, formaður FF, sendi félagsmönnum sínum fyrir helgi segir að málefni sjóðsins hafi reynst félaginu erfið undanfarin ár. Meðal annars hafi staðið yfir málarekstur milli sjóðsins og Kennarasambands Íslands um atriði er varða fjárreiður sjóðsins en einnig hafi stjórn Vísindasjóðs kært stjórn KÍ til embættis héraðssaksóknara. Guðríður segir að á fundinum muni stjórn FF óska eftir leiðbeiningum frá æðstu stofnun félagsins um áframhald málsins og telur það lýðræðislega leið til þess að ná einhverri sátt innan félagsins um fyrirkomulag sjóðsins.
Bréf Guðríðar í heild má lesa hér:
Ágætu félagar
Stjórn Félags framhaldsskólakennara boðar til aukaaðalfundar föstudaginn 8. apríl næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Hvammi á Grand Hótel og hefst kl 9. Endanleg dagskrá verður send út síðar.
Málefni Vísindasjóðs FF og FS hafa reynst Félagi framhaldsskólakennara erfið undanfarin ár. Sjóðurinn fór úr Kennarahúsinu árið 2011 og hafa fulltrúar úr sjóðsstjórn sinnt sjóðnum frá þeim tíma. Þá hefur staðið yfir málarekstur milli sjóðsins og Kennarasambands Íslands um ýmis atriði er varða fjárreiður, gagnaskil og umbúnað sjóðsins á fyrri árum. Stjórn VÍS hefur rekið einkamál gagnvart stjórn KÍ frá árinu 2011 og sumarið 2015 kærði stjórn Vísindasjóðs stjórn Kennarasambands Íslands til embættis héraðssaksóknara.
Stjórn FF hefur lagt til sættir í málinu m.a. að sjóðurinn verð aftur hýstur í KÍ húsi en alfarið á ábyrgð og verksviði starfsmanns félagsins (FF). Til að glöggva sig á stöðunni hefur stjórn FF falast eftir gögnum um ýmislegt er varðar rekstur sjóðsins en ekki fengið m.a. fundargerðir sjóðsstjórnar frá árinu 2011. Við það er að bæta að breytingar á úthlutunarreglum/verklagsreglum sjóðsins hafa ekki verið bornar undir stjórn FF eins og lög félagsins gera ráð fyrir frá sama ári.
Nú er það mat stjórnar FF er að ekki gangi að klippt hafi verið á allt samstarf og samráð þessara tveggja stjórna. Það er mikilvægt að trúnaður ríki milli þeirra sem fara með hagsmuni félagsmanna og mikilvægt að setja þetta mál í brennidepil aðalfundar í þeirri viðleitni að leysa málið í eitt skipti fyrir öll og leggja línur beggja stjórna um framhaldið. Í þeirri vegferð er allt opið og hljóta kjörnir fulltrúar beggja stjórna að lúta ákvörðunum aðalfundar, í þessu tilfelli auka – aðalfundar.
Hlutverk beggja aðila sem að málinu koma er fyrst og fremst að gæta hagsmuna félagsmanna. Þetta mál hefur reynt á marga sem að því hafa komið og hvernig sem á það er litið hefur þessi málarekstur bitnað á félagsmönnum með einum eða öðrum hætti og mál til komið að fara yfir málið af yfirvegun, lið fyrir lið, málefnalega og án upphrópana.
Í lögum Félags framhaldsskólakennara er ekki fjallað um heimildir til þess að kalla saman aukaaðalfund. En samkvæmt þeim skal halda ársfund þau ár sem aðalfundur er ekki haldinn. Lög Kennarasambands Íslands sem standa ávallt framar lögum aðildarfélaganna heimila hins vegar samkvæmt 16. grein að kalla saman aukaþing um sérstök mikilvæg málefni. Skal aukaþing boðað með dagskrá með fjögurra vikna fyrirvara. Í 13. grein laga FF segir að stjórn félagsins fari með æðsta vald milli aðalfunda. Í því felst að stjórn getur boðað til aukaaðalfundar og fjallað um málefni sem annars falla undir aðalfund.
Á þessum grunni boðar stjórn FF til auka aðalfundar þar sem málefni Vísindasjóðs FF og FS verða í brennidepli. Á fundinn eru boðaðir sömu fulltrúar og áttu seturétt á aðalfundi félagsins árið 2014 enda er kjörtímabil þeirra á milli reglulegra aðalfunda.
Á fundinum verður leitast við að skýra eins og kostur er deilu sjóðsins við Kennarasamband Íslands og greint frá samskiptum stjórnar Vísindasjóðs við stjórn FF. Þá verða úthlutunarreglur sjóðsins og þjónusta við félagsmenn tekin fyrir. Fundurinn er tillögu- og ályktunarbær eins og um reglulegan aðalfund væri að ræða hvað varðar þau mál sem eru á dagskrá.
Á fundinum óskar stjórn FF eftir leiðbeiningum frá æðstu stofnun félagsins um áframhald málsins og telur það lýðræðislega leið til þess að ná einhverri sátt innan félagsins um fyrirkomulag sjóðsins.
Félagar okkar í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum eiga einnig aðild að Vísindasjóði FF og FS. Stjórn sjóðsins er skipuð tveimur fulltrúum frá FF og einum fulltrúa frá FS. Aðalfundur FF getur því ekki tekið tekið bindandi ákvarðanir fyrir hönd sjóðsstjórnar VÍS FF og FS, heldur er það tilgangur fundarins að leggja fulltrúum FF í sjóðsstjórn sem og stjórn FF línurnar á grundvelli sérstakra samþykkta í kjölfar upplýstrar umræðu. Sjóðsstjórn vísindasjóðsins afgreiðir svo málefni sjóðsins að venju á reglulegum fundum sínum. Sökum þessa býður stjórn FF aðalmönnum í stjórn FS að sitja fundinn meðan málefni Vísindasjóðs eru til umfjöllunar.
Fljótlega munu aðalfundarfulltrúar fá gögn um ýmislegt er varðar málefni sjóðsins síðustu ár. Stjórn Vísindasjóðs FF og FS verður að sjálfsögðu boðið til fundarins og allt kapp lagt á að tryggja að mismunandi sjónarmið komi fram og endanleg niðurstaða fundarins um framhald málsins verði byggt á ítarlegum og réttum gögnum. Það er von okkar að sú niðurstaða verði málefnaleg, yfirveguð og með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi.
Fyrir hönd stjórnar FF
Guðríður Arnardóttir
Formaður