Auglýst eftir tilnefningum um framúrskarandi skólastarf
Fréttir|12. maí 2024

Frestur til að senda inn tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna rennur út um mánaðamót. Skólafólk er hvatt til að vekja athygli á framúrskarandi skólastarfi, kennurum eða þróunarverkefnum.
Auglýst er eftir tilnefningum til Íslensku menntaverðlaunanna en frestur til að senda inn tilnefningu rennur út um næstu mánaðamót. Verðlaunin verða venju samkvæmt veitt við hátíðlega athöfn í nóvember.
Markmið Íslensku menntaverðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum
- Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Senda tilnefningu - Framúrskarandi kennari
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
Senda tilnefningu - Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.
Senda tilnefningu - Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.
Senda tilnefningu - Hvatningarverðlaun
Til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Senda tilnefningu
Lesa meira um Íslensku menntaverðlaunin