Auglýst eftir tilnefningum til menntaverðlaunanna 2022

Tilnefningar þurfa að berast fyrir 1. júní en nýr verðlaunaflokkur bætist við.
Verðlaunin ná til leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, starfsemi listaskóla og frístunda- og æskulýðsstarfs. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs.
Sérstök athygli er vakin á því að í ár bætist við nýr verðlaunaflokkur: Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Þessi nýi flokkur varð til að frumkvæði Samtaka iðnaðarins sem nú hafa gengið til liðs við þá aðila sem að verðlaununum standa.
Öllum er frjálst að senda inn tilnefningu og eru viðurkenningarflokkarnir fimm:
- Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
- Framúrskarandi kennari
- Framúrskarandi þróunarverkefni
- Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
- Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka
Gerður Kristný er formaður nefndar um Íslensku menntaverðlaunin og nánari upplýsingar um viðurkenningarráð, tilnefningarform og aðra þætti verðlaunanna er að finna á vef Samtaka áhugafólks um skólaþróun.
Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 1. júní 2020.