Auglýst eftir styrkumsóknum vegna samráðs um skólaþjónustu

Fréttir|23. desember 2022

Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá skólafólki vegna samráðs um uppbyggingu heildstæðrar skólaþjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2023.

Mennta- og barnamálaráðherra í samvinnu við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga, óskar eftir umsóknum um styrki frá kennurum, skólastjórnendum og öðru starfsfólki skóla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi sem hafa áhuga á því að taka virkan þátt í samráði vegna ritunar frumvarps til nýrra laga um skólaþjónustu.

Markmið með veitingu styrkjanna er að finna áhugasama aðila sem vinna með börnum á hverjum degi um land allt, vilja deila sinni reynslu og röddum til uppbyggingar nýrrar skólaþjónustu á Íslandi, og veita þeim og þeirra skólum svigrúm til þess.

Sótt er um styrk með því að senda póst á netfang ráðuneytisins, mrn@mrn.is. Jafnframt má senda þangað beiðnir um frekari upplýsingar. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um umsækjanda, störf og reynslu,  eðli og umfang mögulegrar þátttöku viðkomandi í komandi samráði auk samþykkis skólastjórnanda eftir atvikum.

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2023.

Úthlutun styrkja verður á grundvelli tillagna nefndar sem skipuð er fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og stjórnar Kennarasambands Íslands. Miðað er við að styrkfjárhæðir séu á bilinu 200.000 krónur til 3.000.000 króna. Upphæð styrkja fer eftir umfangi og eðli þátttöku, svo sem greiðslu launa í afleysingum fyrir starfsmann sem hyggst taka þátt í samráði í ákveðinn tíma, vinnu starfsmanna að samráði utan hefðbundins vinnutíma og ferðalaga. Samráðið mun fara fram á tímabilinu janúar til maí 2023.

Hér er hægt að lesa meira um styrkveitinguna.