Auglýst eftir framkvæmdastjóra Orlofssjóðs

Fréttir|18. september 2022

Leitað er að einstaklingi sem hefur farsæla reynslu af rekstri og stjórnun, á gott með samstarf og samskipti og hefur áhuga á þróun og innleiðingu nýjunga.

Kennarasamband Íslands leitar að framkvæmdastjóra fyrir Orlofssjóð KÍ. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á og stýrir daglegri starfsemi sjóðsins og vinnur náið með stjórn hans.

Leitað er að einstaklingi sem hefur farsæla reynslu af rekstri og stjórnun, á gott með samstarf og samskipti og hefur áhuga á þróun og innleiðingu nýjunga. Á skrifstofu KÍ starfar öflugur hópur fólks í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi.

Helstu verkefni

  • Daglegur rekstur og stjórnun Orlofssjóðs KÍ
  • Þátttaka í áætlanagerð og kostnaðareftirlit
  • Samningagerð og samskipti
  • Ábyrgð á innkaupum
  • Starfsmannamál
  • Þróunarvinna og innleiðing breytinga
  • Upplýsingagjöf til félagsmanna
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og áætlanagerð
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Jákvætt viðmót, drifkraftur, framsýni og lausnamiðuð nálgun
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Orlofssjóður á tæplega sextíu orlofseignir en auk þess tekur sjóðurinn á leigu orlofseignir yfir sumartímann og endurleigir félagsmönnum.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk.

Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is