Auglýst eftir framboðum til varaformanns KÍ
Fréttir|11. nóvember 2021

Frestur til að bjóða sig fram til varaformanns KÍ er til 17. nóvember.
Framboðsnefnd Kennarasambands Íslands auglýsir eftir framboðum til varaformanns KÍ. Formannskjöri er lokið, eins og kunnugt er, og þar bar sigur úr býtum Magnús Þór Jónsson.
Frambjóðendur til varaformanns eru beðnir að senda tilkynningu þess efnis til framboðsnefndar, netfangið er frambodsnefnd@ki.is. Tiltaka skal nafn, kennitölu, aðildarfélag og vinnustað auk þess sem mynd af frambjóðanda þarf að fylgja.
Tilkynnt verður um framboð í miðlum KÍ um leið og þau berast.
Kjör varaformanns KÍ
- Frestur til að bjóða sig fram rennur út 17. nóvember 2021
- Atkvæðagreiðsla fer fram dagana 6. til 13. desember 2021
Varaformaður tekur formlega við embætti á VIII þingi KÍ sem fram fer í byrjun apríl á næsta ári.