Auglýst eftir framboðum til trúnaðarstarfa í FT

Kallað er eftir framboðum til formanns, stjórnar, ráða og nefnda hjá FT.
Stjórn Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum kallar eftir framboðum til trúnaðarstarfa fyrir félagið á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030. Stjórn FT hefur jafnframt ákveðið að aðalfundur félagsins fari fram 11. apríl næstkomandi.
Framboð til formanns og stjórnar FT
- Formaður FT – kosinn sérstaklega
- Stjórn FT – fjórir aðalfulltrúar og þrír til vara
Formannskjör
- Frestur til að bjóða sig fram til formanns FT er til kl. 12:00 á hádegi, mánudaginn 9. febrúar 2026.
- Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks fer fram dagana 17.-20. febrúar.
Stjórnarkjör
- Frestur til að bjóða sig fram í stjórn FT er til kl. 12:00 á hádegi, miðvikudaginn 25. febrúar 2026.
- Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks fer fram dagana 9.-12. mars.
Fyrirkomulag framboða
Þau sem hyggjast bjóða sig fram í framangreind trúnaðarstörf, einnig þau sem sækjast eftir endurkjöri, skulu senda tilkynningu um framboð á netfangið ft@ki.is. Í póstinum komi fram nafn, kennitala og vinnustaður.
Framboð í fagráð FT
Auglýst er eftir framboðum til fjögurra svæðisbundinna fulltrúa í fagráði FT fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030. Tilnefningu/kosningu svæðisbundinna fulltrúa fagráðs FT skal lokið fyrir aðalfund félagsins.
- Frestur til að bjóða sig fram er til kl. 16:00 miðvikudaginn 18. mars.
- Áhugasamir sendi póst á netfangið ft@ki.is þar sem fram komi nafn, kennitala og vinnustaður.
Í fagráði tónlistarskóla sitja fjórir fulltrúar, sbr. eftirfarandi svæðaskiptingu, auk stjórnar FT:
- Frá Vesturlandi og Vestfjörðum – einn fulltrúi
- Frá Norður- og Austurlandi – einn fulltrúi
- Frá Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum – einn fulltrúi
- Frá Reykjavík – einn fulltrúi
Trúnaðarstörf sem kosið er til á aðalfundi FT
- Kosning þriggja fulltrúa í samninganefnd (sem auk stjórnar FT mynda samninganefnd félagsins)
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara
Óskað er eftir að framboð berist fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 18. mars á netfangið ft@ki.is þar sem fram komi nafn, kennitala og vinnustaður.
Kjör tíu fulltrúa FT á þingi KÍ dagana 15.-17. apríl 2026
Auglýst er eftir félagsfólki til setu á þingi KÍ dagana 15.-17. apríl nk. og geta áhugasamir sent póst á netfangið ft@ki.is fram til kl. 16:00 mánudaginn 9. febrúar nk.