Auglýst eftir framboðum til trúnaðarstarfa í FF

Fréttir|31. október 2025

Frestur til að bjóða sig fram til formanns og í stjórn FF er 1. febrúar 2026. Aðalfundur FF fer fram dagana 19. og 20. mars 2026.

Uppstillingarnefnd FF auglýsir eftir framboðum og tilnefningum vegna kjörs til trúnaðarstarfa fyrir félagið.

Í 20. gr. í lögum Félags framhaldsskólakennara er hlutverki uppstillinganefndar lýst: Hún skal „leggja fram tillögur um frambjóðendur til kjörs formanns, meðstjórnenda, félagslegra skoðunarmanna reikninga, fulltrúa í samninganefnd, formanns skólamálanefndar, fulltrúa í kjörstjórn, uppstillingarnefnd, stjórn Vísindasjóðs og til annarra trúnaðarstarfa sem aðalfundur kýs, sbr. jafnframt 10. grein laga FF.“

Aðalfundur er áformaður 19. og 20. mars. Uppstillingarnefnd þarf að skila tillögum um framboð til formanns og stjórnar FF til kjörstjórnar FF fyrir 1. febrúar 2026.

Því er framboðsfrestur til formanns og stjórnar 7. janúar 2026, svo uppstillingarnefnd gefist færi að athuga kjörgengi og staðfesta lista til kjörstjórnar.

Embætti sem kosið er um í allsherjaratkvæðagreiðslu félagsfólks:

  • Formaður FF
  • Stjórn FF, (5 fulltrúar og 3 til vara)

Á aðalfundi fer fram kosning til eftirtalinna trúnaðarstarfa

  • Samninganefnd FF (5 fulltrúar)
  • Formaður skólamálanefndar FF 
  • Félagslegir skoðunarmenn reikninga, (2 fulltrúar og 1 til vara)
  • Stjórn Vísindasjóðs FF/FS 2 fulltrúar og 1 til vara
  • Kjörstjórn (3 fulltrúar og 2 til vara)
  • Uppstillingarnefnd (3 fulltrúar og 2 til vara)

Framboðsfrestur til þessara starfa er til loka fyrri aðalfundardagsins, 19. mars. Kosningin fer fram þann 20. mars.

Uppstillingarnefnd FF skipa Ármann Halldórsson, Jóna Guðbjörg Torfadóttir og Þorgerður Aðalgeirsdóttir. 

Framboð og tilnefningar skulu berast sem fyrst til starfsfólks nefndarinnar

Ákjósanlegt er að með framboðum fylgi upplýsingar um vinnustað og mynd.