Auglýst eftir framboðum til formanns FG og í önnur trúnaðarstörf

Formannskjör fer fram í FG 2. til 7. maí. Kosið verður í stjórn og önnur embætti 24. til 31. maí 2022.
Kjörefnd FG auglýsir eftir framboðum til stjórnar Félags grunnskólakennara og í önnur trúnaðarstörf innan félagsins. Samkvæmt lögum FG er hér með auglýst eftir framboðum og/eða tilnefningum til trúnaðarstarfa fyrir Félag grunnskólakennara fyrir næsta kjörtímabil frá aðalfundi 2022 til aðalfundar 2026.
Kosningar verða tvíþættar; annars vegar verður kosið til formanns Félags grunnskóla og hins vegar í stjórn og önnur trúnaðarstörf.
Formannskjör
Framboðum og tilnefningum skal skila fyrir miðnætti föstudaginn 22. apríl 2022.
Atkvæðagreiðsla í formannskjöri fer fram dagana 2. maí til 7. maí 2022. (Hefst klukkan 14 og lýkur klukkan 14).
Trúnaðarstörf
Framboðum og tilnefningum í stjórn FG, nefndir og ráð skal skila fyrir miðnætti miðvikudaginn 18. maí 2022.
Kosið verður í eftirfarandi embætti
- Stjórn 11 fulltrúa (6 aðal og 5 vara)
- Samninganefnd 10 fulltrúa (5 aðal og 5 vara)
- Skólamálanefnd 11 fulltrúa (6 aðal og 5 vara)
- Kjörnefnd 6 fulltrúa (3 aðal og 3 vara)
Atkvæðamagn ræður því hverjir hljóta kjör sem aðalmenn og hverjir verða varamenn.
Atkvæðagreiðsla stendur yfir dagana 24. maí til 31. maí 2022. (Hefst klukkan 14 og lýkur klukkan 14).
Skila inn framboði
Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu senda tölvupóst á kjornefndfg@ki.is.
Í póstinum skal koma fram nafn, kennitala, starfsheiti, vinnustaður og einnig skal mynd af viðkomandi fylgja í viðhengi. Hvetjum frambjóðendur til að láta fylgja með stutta kynningu sem birtist með framboði.
Ekki er heimilt að gefa kost á sér eftir að framboðsfresti lýkur.