Auglýst eftir framboðum og tilnefningum
Fréttir|4. febrúar 2014
Uppstillingarnefnd Félags framhaldsskólakennara auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til eftirfarandi trúnaðarstarfa á vegum félagsins sem kjósa skal til á aðalfundi FF 20. - 21. mars 2014:
- Fimm fulltrúar í samninganefnd.
- Formaður skólamálanefndar.
- Tveir fulltrúar í stjórn Vísindasjóðs FF/FS og einn til vara.
- Einn fulltrúi í stjórn Kennarasambands Íslands.
- Þrír fulltrúar í kjörstjórn og tveir til vara.
- Þrír fulltrúar í uppstillingarnefnd og tveir til vara.
- Tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
Frestur til að skila inn framboðum til ofangreindra trúnaðarstarfa er til 17. febrúar nk. Framboð og tilnefningar skulu berast til uppstillingarnefndar eða til starfsmanns nefndarinnar Önnu Maríu Gunnarsdóttur, anna@ki.is.
Í uppstillingarnefnd eru:
Anna Sigríður Davíðsdóttir, anna@ma.is.
Guðjón Ragnar Jónasson, gudjonr@mr.is.
Halldís Ármannsdóttir, ha@fb.is.