Auglýst eftir framboðum í trúnaðarstörf hjá FG

Fréttir|10. maí 2022

Viltu leggja þitt af mörkum og starfa fyrir Félag grunnskólakennara? Frestur til að bjóða sig fram fyrir kjörtímabilið 2022-2026 er 18. maí næstkomandi.

Kjörnefnd Félags grunnskólakennara auglýsir eftir framboðum í hin ýmsu trúnaðarstörf á vegum félagsins. Kjörtímabil þeirra sem verða kosnir er 2022-2026 – og hefst í haust. 

Eftirfarandi er í boði

Stjórn FG

  • Stjórnin er skipuð ellefu fulltrúum. Kosnir verða sex aðalmenn og fimm til vara. 

Samninganefnd FG

  • Nefndin er skipuð tíu fulltrúum, fimm aðalmönnum og fimm varamönnum

Skólamálanefnd FG

  • Nefndin er skipuð ellefu fulltrúum, sex aðalmönnum og fimm til vara. 

Kjörnefnd FG

  • Nefndin er skipuð sex fulltrúum; þremur aðalmönnum og þremur varamönnum. 

 

Hvað þurfa frambjóðendur að gera?

  • Allir frambjóðendur þurfa að senda tölvupóst til kjörnefndar FG, kjornefndfg@ki.is
  • Þetta á líka við um þá sem gegna trúnaðarstörfum nú og hyggjast halda áfram. 
  • Í tölvupóstinum þar að koma fram nafn, kennitala, starfsheiti og vinnustaður. Mynd af viðkomandi þarf að fylgja. 
  • Þá eru frambjóðendur hvattir til að senda stutta kynningu með framboðinu. 

 

Reglurnar

Atkvæðamagn ræður hverjir verða aðalmenn og hverjir varamenn. Ekki er heimilt að gefa kost á sér eftir að framboðsfresti lýkur. 

Framboðum skal skila fyrir miðnætti miðvikudaginn 18. maí 2022.

Atkvæðagreiðsla fer fram dagana 24. maí til 31. maí 2022. (Hefst klukkan 14 og lýkur klukkan 14).