Auglýst eftir framboðum

Fréttir|9. janúar 2014

Framboðsnefnd Kennarasambands Íslands auglýsir eftir frambjóðendum til eftirtalinna trúnaðarstarfa:

Til varaformanns.
Kosið verður í embætti varaformanns í almennri kosningu félagsmanna KÍ sem lokið skal eigi síðar en 19. febrúar 2014.

Kjörstjórn (5 aðalmenn og 3 varamenn)
stjórn orlofssjóðs (7 aðalmenn og 3 varamenn, formaður sérstaklega),
stjórn sjúkrasjóðs (5 aðalmenn og 5 varamenn, formaður sérstaklega),
stjórn vinnudeilusjóðs (5 aðalmenn og 5 varamenn, formaður sérstaklega),
framboðsnefnd (7 aðalmenn og 7 varamenn, formaður sérstaklega),
skoðunarmenn reikninga (2 aðalmenn og 1 varamaður).
Kosið verður í þessi störf á þingi sambandsins í apríl 2014. Framboðum eða tilnefningum um varaformann og aðrar trúnaðarstöður skal skila fyrir 15. janúar 2014.

Nöfnum frambjóðenda fylgi: kennitala, heimilisfang, starfsheiti, símanúmer, vinnustaður, netfang og mynd. Tilnefningar skal senda Stefáni Andréssyni formanni framboðsnefndar í tölvupósti á eftirfarandi netföng: stand hjá fb.is eða stand hjá mi.is. Berist staðfesting ekki innan tveggja sólarhringa er líklegt að sendingin hafi misfarist.

Framboðsnefnd fer þess á leit við trúnaðarmenn að þeir kynni þetta málefni á sínum vinnustað og hvetur félagsmenn til að vinna heilshugar að tilnefningum til trúnaðarstarfa úr sem breiðustum hópi.