Auglýst eftir forsíðumynd
Fréttir|7. janúar 2015
Orlofssjóður vinnur nú að útgáfu Ferðablaðsins 2015. Af því tilefni er auglýst eftir forsíðumynd til að prýða forsíðuna. Áhugasamir eru beðnir að senda ljósmynd eða ljósmyndir á netfangið utgafa@ki.is. Mikilvægt er að láta upplýsingar um myndefni og ljósmyndara fylgja með. Auk þess þarf að senda myndirnar í góðri upplausn.
Veitt verða 30 þúsund króna verðlaun fyrir forsíðumyndina. Skilafrestur á ljósmyndum er til og með 7. febrúar 2015.